• Til þess að taka hillustuðninginn úr skal fyrst toga í
framhluta hillustuðningsins og síðan afturhluta hans frá
hliðarveggjunum. Komdu hilluberunum fyrir í öfugri röð.
• Ef hurðin eða innisgli hurðarinnar eru skemmd, má ekki
nota tækið fyrr en þar til bærir aðilar hafa gert við það.
• Einungis til þess hæfur aðili má þjónusta eða sinna
viðgerðum sem fela í sér að fjarlægja hlína sem veitir vörn
gegn örbylgjum.
• Ekki má hita vökva eða matvæli í innsigluðum ílátum. Þau
geta sprungið.
• Málmílát fyrir mat og drykki eru ekki leyfð meðan á
örbylgjumatreiðslu stendur. Þessi krafa á ekki við ef
framleiðandinn tilgreinir stærð og lögun málmíláta sem
henta fyrir örbylgjumatreiðslu.
• Notaðu aðeins áhöld sem henta til notkunar í
örbylgjuofnum.
• Þegar matur er hitaður í plast- eða pappírsílátum skal
fylgjast með heimilistækinu vegna hugsanlegrar hættu á
íkveikju.
•
Heimilisækið er ætlað til þess að hita matvæli og drykki.
Þurrkun á matvælum eða fatnaði og upphitun á
hlífðarpúðum, inniskóm, svömpum, rökum klútum og öðru
slíku getur leitt til hættu á meiðslum, íkveikju eða eldsvoða.
•
Ef tækið gefur frá sér reyk, skal slökkva á tækinu eða taka
það úr sambandi og hafa hurðina lokaða til að kæfa loga.
•
Hitun drykkja með örbylgjum getur leitt til seinkaðrar
gossuðu. Gæta verður varúðar við meðhöndlun íláta.
•
Hræra skal í eða hrista innihald pela og krukka með
barnamat og kanna hitastigið áður en þess er neytt til að
koma í veg fyrir brunasár.
•
Ekki má hita egg í skurninni eða heil harðsoðin egg í tækinu
þar sem þau geta sprungið, jafnvel eftir að örbylgjuhitun er
lokið.
ÍSLENSKA
264