EasyManuals Logo

laerdal Compact Suction Unit 4 User Manual

laerdal Compact Suction Unit 4
258 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Page #245 background imageLoading...
Page #245 background image
3 Uppsetning LCSU 4
245
Íslenska
Samsetning á 300 ml gerð
1 Stingið efra tenginu inn í lofttæmisinntakið og gætið þess að
neðri hluti hylkisins smelli á sinn stað.
2 Tengið slönguna fyrir sjúklinginn við tengið fyrir slöngu
sjúklings. Gætið þess að öll tengi séu kirfilega þétt á sínum
stað til að koma í veg fyrir leka.
1 2
300ml
250ml
200ml
150ml
100ml
50 ml
300ml
250ml
200ml
150ml
100ml
50 ml
Mikilvægt
300 ml hylkið er innsiglað og er búið innri síu. Hylkið er
einnota og ekki er hægt að þrífa það. Sían stöðvar sog/
flæði sjálfkrafa þegar hylkið er orðið fullt eða þegar sían
verður mettuð ef tækið skyldi detta á hliðina við notkun.
300 ml hylkið (tilv. nr. 886100) má einnig nota með fyrri
gerðinni, LCSU 3. Hins vegar er ekki hægt að nota hylki af
LCSU 3 á LCSU 4.
Járngrind er í boði til að auka stöðugleika (tilv. nr. 886115)
og fæst sem aukabúnaður. Á þann hátt fæst bæði handfang
og undirstaða fyrir tækið.
Varúð
Reynið ekki að koma fyrir eða nota hylki af LCSU 3 á
LCSU 4.
Skoðið eftirfarandi fyrir hverja notkun
1 Hylkin skulu vera óskemmd.
2 Tækið skal vera hreint
3 Allir hlutar tækisins skulu vera tengdir á réttan hátt (hylkin,
slöngurnar o.s.frv.).
4 Gerið prófun á tækinu í hvert sinn sem það er sett saman
(sjá 6. kafla).
5 Athugið hleðsluna á rafhlöðunni: Rafhlöðuhleðsluljósið
ætti ekki að loga í RAUÐUM lit meðan á prófun tækisins
stendur. Hlaða skal rafhlöðuna ef rafhlöðuhleðsluljósið
logar í RAUÐUM lit. Sjá nánar leiðbeiningar um hleðslu (í
5. kafla).
Mikilvægt
Eftirfarandi gildir um báðar gerðir: Hafið ávallt aukahylki
við höndina ef fyrsta hylkið fyllist, eða ef tækið skyldi
detta á hliðina við notkun þannig að sían mettast og
stöðvar sog/flæði.
Viðvörun
Ef hylkið á annarri hvorri gerðinni fyllist og lokast
sjálfkrafa og ekkert aukahylki er til staðar til skiptanna
skal slökkva á LCSU 4 og nota aðrar aðferðir samkvæmt
gildandi aðferðarlýsingu til að hreinsa öndunarveg
sjúklingsins. Ítrekaðar tilraunir til sogs með LCSU 4
hylki/hylkjum sem hafa fyllst geta valdið yfirfalli sem
stöðvar sog, veldur skemmdum á dælunni, ógildir
ábyrgðina á tækinu og veldur langvarandi stöðvun.
Tilv. nr. 886115

Table of Contents

Questions and Answers:

Question and Answer IconNeed help?

Do you have a question about the laerdal Compact Suction Unit 4 and is the answer not in the manual?

laerdal Compact Suction Unit 4 Specifications

General IconGeneral
Brandlaerdal
ModelCompact Suction Unit 4
CategoryMedical Equipment
LanguageEnglish

Related product manuals