163Fyrirhuguð notkun
|
Íslenska
Fyrirhuguð notkun
Wallbox eM4Single er með einum hleðslutengli og hentar því vel þar sem setja á upp hóp hleðslustöðva á
stöðum sem eru opnir almenningi auk þess sem hún er einnig tilvalin fyrir hleðslu á almennum hleðslustöðvum
og á heimilum. eM4Single er fáanleg í „Controller“- eða „Extender“-útfærslu til að búa til hóp hleðslustöðva,
en einnig er hægt að setja hana upp fyrir sjálfstæða vinnslu. Wallbox eM4Single er einnig fáanleg í reevready-
útgáfu með bakvinnslutengingu sem einfaldar umsjón með hleðslum og kostnaðarútreikning til muna.
Tæknilegar upplýsingar
Í þessu skjali er fjallað um notkun Wallbox eM4 Single þegar faglærður rafvirki hefur séð um að setja
hana upp, stilla hana og taka hana í notkun. Ítarlegar upplýsingar um uppsetningu og stillingu er að finna í
uppsetningarhandbókinni sem hægt er að sækja á stafrænu formi (PDF) á vefsíðunni www.ablmobility.de/en.
Samantekt á tæknilegum upplýsingum fyrir vegghleðslustöðina er einnig að finna á upplýsingablöðum fyrir
vöruna.
Tæknilegar upplýsingar Notandi Rafvirki
x Notendahandbók (þetta skjal)
x Upplýsingablöð
x Uppsetningarhandbók
Hægt er að sækja ofangreind skjöl af vefsíðu ABL með eftirfarandi tengli:
https://www.ablmobility.de/en/service/downloads.php
Nánari upplýsingar um vöruúrval okkar og fáanlegan fylgibúnað er að finna á vefsíðu okkar
www.ablmobility.de/en.
Öryggisupplýsingar
HÆTTA
Hætta vegna rafspennu
Sé ekki farið eftir öryggisupplýsingunum í þessari handbók eða þær virtar að vettugi, getur það leitt til
raflosts, eldsvoða, alvarlegs líkamstjóns og/eða dauða.
x Lesið allar öryggisupplýsingar vandlega.
x Fylgið ávallt öllum öryggisupplýsingum!
Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum:
Almennar öryggisupplýsingar
x Lesið þessar leiðbeiningar vandlega.
x Farið eftir öllum ábendingum og fylgið öllum leiðbeiningum.
x Geyma skal þessar leiðbeiningar á öruggum stað sem alltaf er hægt að komast að: Allir sem nota vöruna
verða að geta nálgast efni leiðbeininganna, einkum öryggisleiðbeiningarnar.
Íslenska