169Lekastraumsrofinn prófaður
|
Íslenska
x Ef villan kemur aftur upp skal taka hleðslusnúruna úr sambandi við bílinn og vegghleðslustöðina og
slá út með lekastraumsrofa vegghleðslustöðvarinnar. Sláið einnig út með sjálfvarinu í rafmagnstöflu
hússins (staða0). Að því loknu skal fyrst slá sjálfvarinu aftur inn og síðan lekastraumsrofa
vegghleðslustöðvarinnar (staðaI). Loks skal stinga hleðslusnúrunni aftur í samband við bílinn og síðan við
vegghleðslustöðina.
x Ef villan eða bilunin kemur aftur upp skal hafa samband við faglærðan rafvirkja til þess að láta lagfæra
hana.
x Ef gera þarf við vegghleðslustöðina eða skipta henni út skal snúa sér til faglærða rafvirkjans eða
söluaðilans/framleiðandans sem vegghleðslustöðin var keypt hjá.
Lýsing
Stöðuvísir vegghleðslustöðvarinnar virkar ekki og orkumælirinn á hlið hennar veitir engar upplýsingar.
Orsök og tillaga að úrlausn
x Vegghleðslustöðin er ekki tengd við rafmagn.
x Athugið innbyggða lekastraumsrofann og sláið aftur inn með honum ef þess þarf.
x Athugið sjálfvarið í rafmagnstöflu hússins og sláið því aftur inn ef þess þarf.
x Látið faglærðan rafvirkja skoða rafmagnsleiðsluna og lagfæra hana ef þess þarf.
x Vegghleðslustöðin er í ólagi.
x Hafið samband við faglærðan rafvirkja til þess að láta lagfæra bilunina.
x Ef skipta þarf vegghleðslustöðinni út skal snúa sér til faglærða rafvirkjans eða söluaðilans sem
vegghleðslustöðin var keypt hjá.
Lekastraumsrofinn prófaður
Til að tryggja öryggi við notkun verður að prófa virkni innbyggða lekastraumsrofa vegghleðslustöðvarinnar
samkvæmt gildandi reglum á hverjum stað: Það er gert með hnappi á lekastraumsrofanum sem setur prófunina
af stað.
Prófa skal vélræna virkni lekastraumsrofans með eftirfarandi hætti:
1 Takið lúguna fyrir lekastraumsrofann á hlið
vegghleðslustöðvarinnar úr lás með lyklinum
og lyftið henni upp.