165Hleðsla
|
Íslenska
Hleðsla
Hér á eftir er fjallað um hleðslu með Wallbox eM4Single.
Gerið eftirfarandi:
1 Leggið bílnum þannig að auðvelt sé að
stinga kló hleðslusnúrunnar í samband við
hleðslutengið á bílnum.
x Þegar hleðslustaðurinn á
vegghleðslustöðinni er tilbúinn fyrir
hleðslu leiftrar stöðuvísirinn í grænum lit
(framsetning: 1lota).
2 Undirbúið hleðslusnúru
vegghleðslustöðvarinnar og hleðslutengið á
bílnum.
J Opnið hleðslutengið á bílnum og stingið
hleðslusnúrunni í samband við það.
J Opnið lokið á hleðslutengli
vegghleðslustöðvarinnar og stingið
hleðsluklónni í samband.
3 Gætið að stöðuvísinum á vegghleðslustöðinni.
x Þegar búin er að tengja bílinn og hann greinist
logar stöðuvísirinn stöðugt í grænum lit.
ATHUGIÐ
Auðkenning Wallbox eM4Single
Allt eftir útfærslu getur Wallbox eM4Single verið grunnstillt með mismunandi hætti þegar hún er sett upp.
x „Controller“: Í „Controller“-útfærslu getur vegghleðslustöðin ýmist verið stök eða verið notuð með
bakvinnslu.
x „Controller“ með „Extender“: Hægt er að nota „Controller“ með einni eða fleiri „Extender“-
vegghleðslustöðvum í hóp með eða án bakvinnslu.
x „Extender“ fyrir sjálfstæða vinnslu: „Extender“-vegghleðslustöð sem er grunnstillt fyrir
sjálfstæða vinnslu er notuð stök án bakvinnslu.
Ef auðkenning fyrir hleðslu með RFID-korti er nauðsynleg skal fylgja leiðbeiningunum í skrefum 4 til 6 hér
á eftir. Ef auðkenning er ekki nauðsynleg skal fara beint í skref 7.