168
|
Villur og bilanir lagfærðar
9 Dragið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
á vegghleðslustöðinni og gangið frá
hleðslusnúrunni: Hleðslulúgan lokast
sjálfkrafa.
10 Vegghleðslustöðin er tilbúin til notkunar og
bíður næstu hleðslu (framsetning: 1lota).
Villur og bilanir lagfærðar
Komið geta upp villur og bilanir við notkun vegghleðslustöðvarinnar.
Lýsing
Bíllinn er tengdur við vegghleðslustöðina með
hleðslusnúrunni, en stöðuvísirinn leiftrar samt áfram
í grænum lit: Bíllinn greinist ekki (framsetning:
1lota).
Orsök og tillaga að úrlausn
Hleðslusnúrunni hefur ekki verið stungið rétt í samband.
x Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og takið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
á vegghleðslustöðinni. Að því loknu skal fyrst stinga hleðslusnúrunni aftur í samband við bílinn og stinga
hleðsluklónni síðan í samband við vegghleðslustöðina.
x Skoðið hleðslusnúruna og skiptið um hana ef þess þarf.
Lýsing
Stöðuvísirinn leiftrar í rauðum lit (framsetning: 1 lota).
Orsök og tillaga að úrlausn
Vegghleðslustöðin greindi villu eða bilun sem gerir að verkum að ekki er hægt að hlaða eða hleðslan er stöðvuð.
Stöðuvísirinn leiftrar í rauðum lit þar til búið er að lagfæra villuna.
x Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og takið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
á vegghleðslustöðinni. Að því loknu skal fyrst stinga hleðslusnúrunni aftur í samband við bílinn og stinga
hleðsluklónni síðan í samband við vegghleðslustöðina.
x Ef villan kemur aftur upp skal taka hleðslusnúruna úr sambandi við bílinn og vegghleðslustöðina. Takið
lúguna fyrir lekastraumsrofann á vegghleðslustöðinni úr lás, opnið hana, sláið út með lekastraumsrofanum
(staða0), sláið aftur inn (staðaI) og lokið síðan og læsið lúgunni fyrir lekastraumsrofann aftur (sjá einnig
„Wallbox eM4Single tekin úr notkun“ á bls.170). Að því loknu skal stinga hleðslusnúrunni aftur í
samband við bílinn og síðan við vegghleðslustöðina.