EasyManua.ls Logo

ABL Wallbox eM4 Single - Notkunarleiðbeiningar

ABL Wallbox eM4 Single
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
164
|
Notkunarleiðbeiningar
x Ekki má líma neitt á vöruna eða hylja hana með öðrum hlutum eða efni.
x Ekki má setja neinn vökva eða ílát með vökva á vöruna.
x Ekki má byrja að nota vöruna fyrr en faglærður rafvirki hefur yfirfarið hana.
Tilskipanir og reglur
Vinsamlegast athugið að raforkufyrirtæki, veitufyrirtæki eða innlendar reglugerðir geta krafist tilkynningar eða
leyfis fyrir uppsetningu eða rekstri hleðslustöðvar.
Framleiðandaábyrgð felld úr gildi
Alls ekki má breyta vörunni með neinum hætti. Ef ekki er farið eftir þessu teflir það öryggi í hættu og felur í sér
alvarlegt brot gegn ábyrgðarskilmálum sem getur leitt til þess að ábyrgðin falli tafarlaust úr gildi.
Takmörkun á notendahópi
x Einstaklingar (þ.m.t. börn) með skerta líkamsgetu, skyngetu eða andlega getu eða einstaklingar sem
skortir reynslu og/eða þekkingu skulu ekki nota vöruna nema að þeir séu undir eftirliti aðila sem gætir
öryggis þeirra eða veitir þeim tilsögn í notkun vörunnar.
x Hafa verður eftirlit með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með vöruna.
Fylgibúnaður
x Notið eingöngu hleðslusnúrur sem eru vottaðar samkvæmt gildandi framleiðslustaðli og samræmast
IEC62196-1 og IEC62196-2.
x Mælt er með því að nota eingöngu þann fylgibúnað sem ABL býður upp á fyrir vöruna.
x Bannað er að nota framlengingarsnúrur.
Bilanir lagfærðar
x Athugið að ef þráðlausir sendar eru notaðir nálægt vörunni (<20cm) getur það valdið truflunum á virkni
hennar.
x Eingöngu faglærðir rafvirkjar mega gera við bilanir sem öryggi fólks eða vörunni sjálfri stafar hætta af.
x Ef einhver eftirfarandi bilana kemur upp skal snúa sér til faglærða rafvirkjans sem annaðist uppsetningu:
x Ytra byrðið hefur orðið fyrir hnjaski, lokið hefur verið fjarlægt eða ekki er hægt að loka því.
x Varan virkar ekki eins og hún á að gera.
x Hleðslutengillinn, tengda hleðslusnúran eða hleðslukló hennar hafa orðið fyrir sjáanlegum skemmdum
eða virka ekki rétt.
Notkunarleiðbeiningar
x Gætið þess að varan sé ávallt lokuð og læst á meðan hún er í notkun.
x Fylgið ávallt gildandi öryggisreglum um notkun raftækja á staðnum þar sem varan er notuð.
x Til þess að taka vöruna alveg úr sambandi við rafmagn verður að slá út sjálfvörum og lekastraumsrofum í
rafmagnstöflu hússins.
x Gætið þess að strekkja aldrei of mikið á hleðslusnúrunni.
x Gætið þess að aka ekki yfir hleðslusnúruna, brjóta upp á hana eða klemma hana. Sýnið alltaf sérstaka
aðgát við meðhöndlun hleðsluklóa og hleðslutengla.
x Látið eingöngu gera við vöruna hjá rafvirkjum sem ABL viðurkennir.

Table of Contents

Other manuals for ABL Wallbox eM4 Single

Related product manuals