A Inngangur
288 eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann
A Inngangur
eFlow
®
rapid innöndunarkerfið er rafhlöðuknúið lækn-
ingatæki, lágvært og létt í meðförum, sem breytir lyfinu
þínu í úða til innöndunar.
Lyfinu er hellt í lyfhólfið á úðaranum en upp að því liggur
himna sem á eru örlítil op. Þegar tækið er í gangi titrar
himnan sem veldur því að lyfið þrýstist gegnum opin og
myndar fínan úða sem þú andar að þér, alla leið niður í
lungu.
eBase
®
Controller-einingin er stjórntækið fyrir eFlow
®
Technology úðara, svo sem Tolero
®
fyrir Vantobra
®
og
eFlow
®
rapid.
Þessar notkunarleiðbeiningar lýsa eFlow
®
rapid úðara-
num og þeim skal einnig fylgja við notkun úðara sem
gerðir eru fyrir ákveðin lyf, nema annað sé sérstaklega
tekið fram.
Úðarar fyrir ákveðin lyf eru afhentir með sérstökum
samþykktum lyfjum og/eða eftir sérstökum
dreifingarleiðum.
Í þessum „Notkunarleiðbeiningum“ er að finna
upplýsingar um innöndunarkerfið og varúðarráðstafanir
varðandi það.
Gefðu gaum að hvers konar takmörkunum sem koma
fram á fylgiseðlinum með lyfinu.
Áður en þú notar eFlow
®
rapid innöndunarkerfið
verðurðu að lesa og skilja allar „Notkunarleiðbeining-
arnar“ og geyma þær til að fletta upp í síðar.
Ef þú skilur ekki einhvern hluta þessara leiðbeininga,
af hvaða ástæðu sem er, skaltu hafa samband við
þjónustuaðilann áður en þú tekur til við meðferðina.
Gefðu sérstakan gaum að öllum varúðarráðstöfunum
sem merktar eru sem Viðvörun eða Varúð.
Í löndum innan Evrópusambandsins (EU) skal tilkynna
alvarleg atvik til framleiðanda og viðkomandi yfirvalda.
Ef heilsuástand þitt batnar ekki, af hvaða ástæðu
sem er, eða versnar jafnvel, skaltu leita eftir faglegri
læknisráðgjöf.
Ábendingar
eFlow
®
rapid innöndunarkerfið er ætlað til lyfjagjafar
þegar um er að ræða lausnir eða sviflausnir fyrir úðara,
sem viðurkenndar eru til meðferðar á sjúkdómum í neðri
öndunarvegi.
Frábendingar
Framleiðanda þessa lækningatækis er ekki kunnugt um
neinar frábendingar.
Tilætluð notkun
eFlow
®
rapid innöndunarkerfið er ætlað til skammtaðrar
inntöku á lausnum eða sviflausnum fyrir úðara, í formi
innöndunarúða.