IS
eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann 303
is
H Samsetning innöndunarkerfisins
H Samsetning innöndunarkerfisins
VIÐVÖRUN
Úðarann verður að hreinsa áður en hann er notaður í fyrsta sinn. Farðu eftir leiðbeiningunum í kafla E.
Athugasemd: Ef úði sem andað er inn er of kaldur getur það valdið ertingu í öndunarveginum. Taktu lyfið úr
kæliskápnum áður en þú setur úðarann saman.
Skref H1 Þvoðu hendurnar með vatni og sápu.
Þurrkaðu þér vel um hendur.
Mynd H1
Skref H2 Komdu úðagjafanum fyrir.
Láttu úðagjafann snúa þannig að áletrunin, t.d.
„eFlow
®
rapid“ sé efst. Gakktu úr skugga um að
úðagjafinn sem þú notar sé merktur réttum úðara.
Taktu varlega með tveimur fingrum um sveigjan-
legu plastflipana tvo (a) sinn hvorum megin á
úðagjafanum.
Þrýstu sveigjanlegu plastflipunum tveim saman á
meðan þú stingur málmtindunum tveim og sveigjan-
legu plastflipunum tveim inn í lyfhólfið (b). Þú ættir
að finna sveigjanlegu plastflipana „grípa“ þegar þú
kemur úðagjafanum fyrir.
Mynd H2
VARÚÐ
Ekki snerta silfurlitaðan miðhluta úðagjafans.
Ef hann er snertur er hætt við að himnan sem
myndar úðann skemmist.
b
a