I Inntaka lyfsins
306 eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann
I Inntaka lyfsins
Skref I1 Helltu lyfinu í lyfhólfið. Gakktu úr skugga um að
úðarinn sitji á flötum og stöðugum fleti.
Mynd I1
Skref I2 Festu lyfhólfslokið með því að færa saman hökin
á lyfhólfslokinu og raufarnar á lyfhólfinu.
Snúðu lyfhólfslokinu réttsælis þar til það stöðvast.
Athugasemd: Þegar lyfhólfslokinu er snúið lyftist
innra lokið (a) þangað til það nær hæð ytra loksins.
Athugasemd: Gættu að því að áður en notkun
hefst verður tækið að vera rétt sett saman og
lyfhólfið er þéttlokað. Ef tækið er notað ranglega
samansett getur það haft neikvæð áhrif á skilvirkni
meðferðarinnar.
Mynd I2
VARÚÐ
Reyndu ekki að anda inn ilmkjarnaolíum með
eFlow
®
rapid úðara því að það kann að valda
ertingu í öndunarvegi (áköfum hósta).
VIÐVÖRUN
- Ekki yfirfylla úðarann. Gakktu ávallt úr skugga
um að lyfið fari ekki yfir fyllihámarkið (sjá efra
kvarðastrikið á úðaranum).
- Til að tryggja réttan lyfjaskammt skal aldrei nota
annað lyf en það sem heimilað er þegar um er
að ræða úðara fyrir ákveðið lyf, og notaðu það
ekki í eFlow
®
rapid úðara.
a