EasyManua.ls Logo

Pari eFlow rapid - Aðferð 3: Sótthreinsiþvottavél (Aðeins á heilbrigðisstofnunum)

Pari eFlow rapid
490 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
IS
eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann 301
is
F Sótthreinsun úðarans
Aðferð 3: Sótthreinsiþvottavél
(Aðeins á heilbrigðisstofnunum)
Skref F10 Þegar allir hlutarnir eru fullkomlega þurrir skaltu
geyma þá í hreinum poka eða breiða yfir þá klút
sem er laus við ló.
Settu úðarann aftur saman rétt áður en hann er
notaður.
Notaðu sótthreinsiþvottavél í samræmi við kröfurnar sem settar
eru fram í staðlaröðinni ISO 15883.
Skilvirkni þessarar aðferðar hefur verið sannreynd með því að
nota alkalí-ensím hreinsiefnið neodisher
®
MediClean forte
(Chemische Fabrik Dr. Weigert, Hamborg) með steinefnaskertu
vatni sem hlutleysi.
Úðarinn er ætlaður til notkunar hjá aðeins einum sjúklingi og
hann má ekki notast af fleiri sjúklingum. Þess vegna er mikil-
vægt að halda saman hlutum hvers úðara fyrir sig í þvottavélinni.
Komdu hlutunum þannig fyrir að þeir hreinsist vandlega alls
staðar.
Notaðu steinefnaskert vatn og heppilegt hreinsiefni og fylgdu
leiðbeiningunum sem framleiðandi hreinsiefnisins lætur í té.
Veldu þvottakerfið og síðan kerfi fyrir hitasótthreinsun sem nær
A0-gildinu 3000 að lágmarki.
Þó að sótthreinsiþvottavélin sé búin þurrkunarkerfi skaltu ganga
úr skugga um að engar rakaleifar séu í úðaranum með því að
hrista hlutana og láta þá þorna á hreinum klúti sem er laus við ló.
Þegar allir hlutarnir eru fullkomlega þurrir skaltu geyma þá í
hreinum poka eða breiða yfir þá klút sem er laus við ló.
Settu úðarann aftur saman rétt áður en hann er notaður.

Table of Contents

Other manuals for Pari eFlow rapid

Related product manuals