IS
eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann 299
is
F Sótthreinsun úðarans
F Sótthreinsun úðarans
Aðferð 1 (aðalaðferð): Hitasótthreinsun (suða)
Athugasemd: Hreinsaðu úðarann áður en þú sótthreinsar úðarann. Úðarann er ekki hægt að sótthreinsa svo vel sé
nema hann hafi verið hreinsaður fyrst.
Sótthreinsaðu einstaka hluta úðarans með því að sjóða þá í
eimuðu vatni.
Skref F1 Fylltu hreinan pott af nægilega miklu eimuðu vatni
til að fljóti yfir alla hlutana.
Skref F2 Hitaðu vatnið upp að suðu.
Skref F3 Leggðu ósamsetta hlutana í vatnið, þar með talinn
úðagjafann og sjóddu í heilar 5 mínútur.
Mynd F3
Skref F4 Taktu hlutana upp úr vatninu þegar það hefur
kólnað og hristu þá til að fjarlægja mestallt vatnið.
VARÚÐ
Plast getur bráðnað ef það kemst í snertingu við
heitan botn suðupottsins þegar ekki er nóg vatn í
pottinum.