WWW.WEBER.COM
®
13
UNDIRBÚNINGUR FYRIR GASLEKA ATHUGUN
m AÐVÖRUN: Gastengingarnar fyrir gasgrillið hafa verið
prófaðar af verksmiðjunni. Við mælum hins vegar með því
að þú athugir gasleka á öllum gastengjum áður en þú byrjar
að nota gasgrillið þitt.
Fjarlægið gasstjórntakka og stjórnborð áður en leki er athugaður
Það sem þarf: Stjörnuskrúfjárn og flatt skrúfjárn.
A) Finnið pinnann í hurðarlömunum. Ýtið niður pinnanum með skrúfjárninu (1) þar til
hurðin losnar úr rammanum. Togið efri hluta hurðarinnar frá rammanum (2) og lyftið
hurðinni upp af neðri stillanlega lamapinnanum.
B) Fjarlægið stjórntakka, kveikjutakkann, öryggisróna og rafhlöðu (3).
C) Fjarlægið skrúfurnar úr vindhlífunum með stjörnuskrúfjárni (4).
D) Hallið enda vindhlífarinnar og rennið vindhlífinni burt til að fjarlægja (5).
E) Leyfið kveikieiningunni hanga í vírunum. Ekki aftengja (6).
F) Fjarlægið skrúfurnar frá botni stjórnborðsins með stjörnuskrúfjárni (7).
G) Lyftið stjórnborðinu lítillega upp, hallið frambrúninni upp og lyftið varlega upp (8).
H) Endursetjið stjórnborð og vindhlífina þegar búið er að athuga með lekann.
◆
LEIÐBEININGAR VARÐANDI GAS
Það gasgrill sem sýnt er gæti
verið svolítið öðruvísi en það
gasgrill sem keypt var.