22
VIÐHALD
WEBER
®
KÖNGULÓA/SKORDÝRAHLÍF
Weber
®
gasgrillið þitt, og öll önnur úti gastæki, eru skotmark fyrir kóngulær og önnur
skordýr. Þau geta byggt hreiður í hluta (1) brennararörana. Þetta hindrar venjulegt
gasflæði, og getur valdið því að gasið flæði í öfuga átt. Þetta getur valdið bruna í og í
kringum útbrennsluop, undir stjórnborðinu, og getur eyðilagt grillið þitt.
Innsogsop brennarans er með ryðfría stálhlíf (2) til að koma í veg fyrir að köngulær og
önnur skordýr safnist fyrir í brennararörunum í gegnum innsogs opið.
Við leggjum til að þú athugir kóngulóa/skordýraskermana að minnsta kosti einu sinni
á ári. (Skoðið “ÁRLEGT VIÐHALD”). Skoðið og þrífið líka skordýrahlífarnar ef eitthvert
þessara einkenna koma fyrir:
A) Gaslykt í samspili við að brennarinn virðist gulur og latur.
B) Grillið nær ekki hitastiginu sem óskað er eftir.
C) Grillið er með ójafnan hita.
D) Einn eða fleiri brennarar tendrast ekki.
m HÆTTA
Ef ofantalin atriði eru ekki löguð getur það valdi bruna, sem
getur valdið eignaspjöllum, líkamsáverkum eða dauða.
◆
ÞRIF
m AÐVÖRUN: Slökkvið á Weber
®
gasgrillinu og leyfið því að
kólna áður en það er þrifið.
m VARÚÐ: Ekki þrífa Flavorizer
®
Bragðburstirnar eða
grillgrindurnar í sjálfþrífandi ofni.
Utan á grillinu - notið heitt sápuvatn til að þvo, hreinsið síðan með vatni.
m VARÚÐ: Notið ekki ofnhreinsiefni, hrjúf hreinsiefni
(hreinsiefni fyrir eldhús), hreinsiefni sem innihalda súraldin,
eða hrjúfa klúta á grillið eða á yfirborði vagnsins.
Rennið út fitubakkanum - Fjarlægið alla fitu, þvoið með sápuvatni, skolið síðan.
m VARÚÐ: Ekki setja álpappír í fitubakkann sem hægt er að
renna út.
Flavorizer
®
bragðburstir og grillgrindir - Þrífið með viðeigandi ryðfríum stálvírbursta.
Ef þörf er á, fjarlægið úr grillinu og þrífið með heitu sápuvatni, skolið með vatni.
Vegna endurnýjunar á grillgrindum og Flavorizer
®
bragðburstum, hafið samband
við notendaþjónustu í nágrenni við þig með því að nota þær upplýsingar sem eru
til á heimasíðu okkar. Tengist www.weber.com
®
.
Söfnunarbakkinn - Einnota álbakkar eru fáanlegir, eða þú getur klætt söfnunarbakkann
í álpappír. Til að þrífa fitupönnuna, þrífið með heitu sápuvatni, skolið síðan.
Hitamælir - Þurrkið af með heitu sápuvatni; þrífið með plastbursta.
Grillkassi - Burstið allar leifar af brennararörunum. GÆTIÐ ÞESS AÐ STÆKKA EKKI
BRENNARAOPIN (GÖTIN). Þvoið grillkassann að innan með heitu sápuvatni og skolið
með vatni.
Inn í lokinu - Á meðan lokið er heitt, þurrkið inn í með pappír til að hindra að fitan safnist
saman. Flögur af fitu líkjast málningarflögum.
Yfirborð úr ryðfríu stáli - Þvoið með mjúkum klút og sápuvatni. Verið viss um að
skrúbba í þá átt sem agnir ryðfría stálsins er í.
Notið ekki hreinsiefni sem innihalda sýru, steinefni eða xýlen. Skolið vel eftir
þvott.
◆
VARÐVEITIÐ RYÐFRÍA STÁLIÐ
Gasgrillið þitt eða grillhúsið, lokið, stjórnborðið og hillurnar geta verið úr ryðfríu stáli. Það
er einfalt mál að sjá til þess að ryðfrítt stál líti sem best út. Þrífið það með sápu og vatni,
skolið með tæru vatni og þurrkið. Hægt er að nota fínan bursta fyrir fastar agnir.
m MIKILVÆGT: Notið ekki vírbursta eða hrjúf hreinsiefni á
ryðfría stálið á gasgrillinu. Það getur rispað það.
m MIKILVÆGT: Þegar ryðfría stálið er þrifið verið viss um að
skrúbba/þurrka í þá átt sem agnir ryðfría stálsins liggja, til
þessa að vernda yfirborð þess.
◆