EasyManuals Logo

Weber Genesis E-310 User Manual

Weber Genesis E-310
226 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Page #218 background imageLoading...
Page #218 background image
20
RÁÐ FYRIR GRILLMATSELD OG HJÁLPLEGAR ÁBENDINGAR
Athugið: Aðstæður til matreiðslu, eins og veðurskilyrði, geta krafist stillingar á brennurum
til þess að fá fram rétt hitastig til eldunnar.
Athugið: Ef grillið missir hita meðan á notkun stendur skoðið kaflann um bilanaleit í
þessari handbók.
m AÐVÖRUN: Færið ekki Weber
®
gasgrillið til þegar það er í
notkun eða þegar það er heitt.
Ef slökknar á brennara meðan á matseld stendur, opnið lokið, slökkvið á öllum
brennurum og bíðið í fimm mínútur með því að kveikja aftur á grillinu.
MATSELD MEÐ LOKIÐ NIÐRI
Öll grillmatseld er framkvæmd með lokið niðri til að skapa jafnan og dreifðan hita. Með
lokið niðri grillar gasgrillið eins og blástursofn. Hitamælirinn á lokinu sýnir hitastigið inn í
grillinu. Öll forhitun og grillmatseld er gerð með lokið niðri. Ekki gægjast — hitinn sleppur
út í hvert skipti sem þú lyftir lokinu.
LEKI OG FITA
Flavorizer
®
bragðburstirnar eru hannaðar til að “reykja” rétt magn af feiti fyrir bragðmikla
eldamennsku. Of mikið af feiti og fitu safnast saman í fitupönnunni undir fitubakkanum.
Það er hægt að fá einnota álbakka sem passa í söfnunarbakkann.
m AÐVÖRUN: Athugið fitubakkann sem hægt er að renna
út og fitupönnuna í hvert skipti áður en grillið er notað.
Fjarlægið fitu til þess að koma í veg fyrir að kvikni í fitunni í
fitubakkanum.
Forhitið grillið alltaf fyrir matseld. Stillið alla brennara á HI og hafið grillið lokað. Hitaðu
í 10 til 15 mínútur eða þangað til að hitamælirinn sýnir 260°-288°C (500°-550°F).
Grillið matinn með lokið niðri svo matur verður fullkominn í hvert skipti.
Grilltími í uppskriftum er miðaður við 20˚C (70° F) lofthita og þegar logn eða lítill
vindur er. Búast má við lengri grilltíma í köldu veðri eða þar sem grillað er hátt yfir
sjávarmáli. En reiknið með styttri grilltíma þar sem er mjög heitt í veðri.
Grilltíminn getur verið mismundandi eftir veðri, eða magni, stærð og lögun þess mats
sem grillaður er.
Hitinn á gasgrillinu þínu getur verið heitari en venjulega í fyrstu skiptin sem það er
notað.
Þær aðstæður sem grillað er við, geta krafist stillingar á brennurum til þess að fá fram
rétt hitastig til eldunnar.
Í raun er það svo, að stór kjötstykki þurfa lengri grilltíma fyrir hvert kíló en lítið
kjötstykki. Matur á yfirfylltri grillgrind þarf lengri grilltíma en fáeinir kjötbitar. Matur
sem er grillaður í ílátum, eins og bakaðar baunir, þurfa meiri tíma í djúpum potti en á
grunnri steikingarpönnu.
Skerið burt fitu frá steikum, kótelettum og öðru kjöti, en haldið eftir tæplega 6,4 mm
(¼ úr tommu) af fitu. Það er auðveldara að þrífa ef lítil fita er, og það minnkar hættuna
á að logar blossi upp þegar grillað er.
Matur sem settur er á grillgrindina beint yfir brennurunum, þarf kannski að snúa eða
færa til þar sem minni hiti er.
Notið grilltangir fremur en gaffla til að koma í veg fyrir að kjötið missi vökva þegar það
er snúið. Notið tvo spaða til þess að snúa stórum fisk.
Ef logar blossa upp, skrúfið fyrir alla brennara og færið kjötið til á grillgrindinni. Fljótt
mun draga úr logunum. Eftir að logarnir eru horfnir, kveikið aftur á grillinu. NOTIÐ
ALDREI VATN TIL ÞESS AÐ SLÖKKVA LOGA Á GASGRILLI.
Ýmis matur, svo sem þunn fiskflök þurfa ílát ef á að grilla þau. Einnota álbakkar eru
mjög handhægir, en einnig er hægt að nota málmpönnu með eldföstum handföngum.
Vertu alltaf viss um að ekki sé óhreinindi eða matarleifar í fitubakkanum og
fitupönnunni.
Ekki setja álpappír í fitubakkann sem hægt er að renna út. Það gæti komið í veg fyrir
að fitan renni í fitupönnuna.
Að nota tímamæli eða þráðlausan kjöthitamæli, mun hjálpa þér til að láta þig vita
hvenær steikin er “velsteikt” en ekki “of steikt”.
FORHITUN
Weber
®
gasgrillið þitt er orkusparandi tæki. Það gengur við sparneytnu lágu BTU
stigi. Að hita upp grillið áður en það er notað er mikilvægt. Kveikið á gasgrillinu þínu
samkvæmt leiðbeiningunum í handbókinni. Til að forhita: eftir að kveikt hefur verið á,
snúðu alla brennara á START/HI, lokaðu lokinu og hitaðu grillið þangað til að hitastigið
er á milli 260° og 288° C (500°F og 550°F), hið ráðlagða grillhitastig. Þetta tekur 10 til 15
mínútur (fer eftir skilyrðum eins og hitastigi lofts og vinds).
Hægt er að stilla hvern brennara fyrir sig. Stjórnstillingarnar eru OFF, START/HI,
MEDIUM, eða LOW.
OFF START/HI MEDIUM LOW
FLAVORIZER
®
KERFIÐ
Þegar fita drýpur af kjötinu á sérstaklega beygðu Flavorizer
®
bragðburstirnar, skapa
þær reyk sem gefur matnum ómótstæðilegt grillbragð. Þökk sé frábærri hönnun á
brennurum, Flavorizer
®
bragðburstum og sveigjanlegri hitastjórn, er búið að koma í veg
fyrir stjórnlausan eld, vegna þess að ÞÚ stjórnar eldinum. Vegna sérstakrar hönnunar á
Flavorizer
®
bragðburstunum og brennurunum, er fitunni sem drýpur af beint í gegnum
fitubakkann, sem hægt er að renna út, að fitupönnunni.

Table of Contents

Questions and Answers:

Question and Answer IconNeed help?

Do you have a question about the Weber Genesis E-310 and is the answer not in the manual?

Weber Genesis E-310 Specifications

General IconGeneral
LidYes
Form factorCooking station
Lid featuresHinged lid
Product colorBlack, Stainless steel
Top surface typeGrate
Built-in capability-
Cooking surface shapeRectangular
Cooking surface (W x D)660 x 490 mm
TypeBarbecue
Heat sourceGas
Total power12300 W
Number of cooking zones3 zone(s)
LegsNo
Number of wheels4 wheel(s)
Number of built-in cutting boards2
Weight and Dimensions IconWeight and Dimensions
Depth920 mm
Width1490 mm
Height1630 mm
Weight100000 g

Related product manuals