EasyManua.ls Logo

Weber Genesis E-310 - Kveikt Handvirkt; Að Slökkva

Weber Genesis E-310
226 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
WWW.WEBER.COM
®
19
AÐ KVEIKJA Á BRENNURUM OG NOTKUN
A) Opnið lokið (1).
B) Tryggið að skrúfað sé fyrir alla gasstjórntakka brennara (2). (Ýtið gasstjórntakkanum
inn og snúið réttsælis til að tryggja að hann sé í OFF stöðu.)
m HÆTTA: Gasstjórntakkar verða að vera í OFF stöðu áður en
opnað er fyrir Gaskútinn (3).
C) Opnið fyrir gaslokann með því að nota viðeigandi valmöguleika eftir gerð gaskúts og
stjórnloka (3).
D) Kveikt skal á brennurunum, hverjum fyrir sig frá vinstri til hægri. Byrjið á
brennaranum lengst til vinstri. Látið eldspýtu í eldspýtnahaldarann og kveikið
á henni. Setjið eldspýtnahaldarann með kveikta eldspýtu á niður í gegnum
ristarnar, framhjá Flavorizer
®
stöngunum rétt hjá vinstri brennaranum (4). Ýtið
gasstjórntakkanum inn (5) og snúið að START/HI til að kveikja á brennaranum.
Kannið hvort brennarinn logi með því að horfa gegnum ristarnar á grillinu. Það ætti
að sjást logi (6).
m HÆTTA: Hallið ykkur ekki yfir opið grillið.
E) Kveikið á miðjubrennaranum með að láta eldspýtu í eldspýtnahaldarann og kveikja
á henni. Setjið þá eldspýtnahaldarann með kveikta eldspýtu á undan niður í
gegnum ristarnar, framhjá Flavorizer
®
stöngunum og næst miðjubrennaranum. Ýtið
gasstjórntakkanum inn (7) og snúið að START/HI til að kveikja á miðjubrennaranum.
Kannið hvort miðjubrennarinn logi með því að horfa gegnum ristarnar á grillinu.
F) Kveikið á hægri brennara með að setja eldspýtu í eldspýtnahaldarann og kveikja
á eldspýtu. Setjið síðan eldspýtnahaldarann með kveikta eldspýtu á undan niður
í gegnum ristarnar, framhjá Flavorizer
®
stöngunum og næst hægri brennaranum.
Ýtið gasstjórntakkanum inn (8) og snúið að START/HI til að kveikja á hægri
brennaranum. Kannið hvort hægri brennarinn logi með því að horfa gegnum
ristarnar á grillinu.
m HÆTTA: Ef ekki kviknar á einhverjum brennara, þegar það
er reynt, skal snúa gasstjórntakka brennarans á OFF innan
fimm sekúndna og bíða fimm mínútur til að lofta út gasinu
áður en reynt er aftur.
AÐ SLÖKKVA
Ýtið inn og snúið gasstjórntakka hvers brennara sólarsinnis í OFF stöðu. Lokið fyrir
gasið við kútinn.
KVEIKT HANDVIRKT
2
5
7
1
8
3
2
4
6
2 5 7 8
Það gasgrill sem sýnt
er gæti verið svolítið
öðruvísi en það gasgrill
sem keypt var.
m HÆTTA
Ef lokið er ekki uppi þegar kveikt er á grillbrennurunum eða
ekki beðið í fimm mínútur til að lofta út gasinu, þegar kviknar
ekki á grillinu, getur það valdið sprengiblossa, sem getur leitt
til alvarlegs líkamstjóns eða dauða.

Table of Contents

Related product manuals