WWW.WEBER.COM
®
23
VIÐHALD
AÐ HREINSA EÐA SKIPTA UM BRENNARARÖR
Staðfestið að slökkt sé á gasgrillinu
A) Skrúfið fyrir gaskútinn og aftengið gastenginguna.
B) Gangið úr skugga um að slökkt sé á öllum brennurum með stjórntökkum (
).
Athugið þetta með því að ýta stjórntökkum brennaranna inn og snúa þeim réttsælis
þar til þeir stöðvast. Ef þeir snúast ekki er þegar slökkt. Ef þeir snúast skal halda
áfram að snúa þeim réttsælis þar til þeir stöðvast; þá er skrúfað fyrir. Ef grillið er
með hliðarhellu skal tryggja að slökkt sé á henni með stjórntakkanum.
C) Fjarlægið íhluti grillhússins – hitunargrindina, grillgrindur og Flavorizer
®
bragðburstir.
(Ekki þarf að fjarlægja hitahlífðarplötur.)
Fjarlægið stjórnborðið
Það sem þarf: Stjörnuskrúfjárn.
A) Finnið pinnann til að losa hurðina. Notið skrúfjárn til að ýta pinnanum niður (1) þar til
hurðin losnar af rammanum. Togið efri hluta hurðarinnar frá rammanum (2) og lyftið
henni af stillanlega lamarpinnanum.
B) Fjarlægið brennarastjórntakka, kveikjurofann, öryggisró kveikisins og rafhlöðuna (3).
C) Notið stjörnuskrúfjárn til að fjarlægja skrúfur af vindhlífinni (4) undir stjórnborðinu.
D) Hallið afturhluta vindhlífarinnar niður og rennið henni út til að fjarlægja hana (5).
E) Fjarlægið kveikieininguna af stjórnborðinu (6) og fjarlægið alla vírana af einingunni.
F) Fjarlægið skrúfurnar af botni stjórnborðsins með stjörnuskrúfjárni (7).
G) Lyftið stjórnborðinu lítillega upp, hallið frambrúninni upp og lyftið henni varlega upp
og út (8).
Það gasgrill sem sýnt
er gæti verið svolítið
öðruvísi en það gasgrill
sem keypt var.