IS
eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann 297
is
E Hreinsun úðarans
Skref E3 Bættu nokkrum dropum af tærum uppþvottalegi í
heitt kranavatn (um 37°C, eða 98°F) í hreinu íláti
eða skál og láttu alla hluta úðarans liggja í bleyti
í 5 mínútur.
Mynd E3
Skref E4
Skrefi E4
Skolaðu alla hluta vandlega undir heitu rennandi
kranavatni og skoðaðu þá síðan til að ganga úr
skugga um að þeir séu hreinir og ekki sýnilega
skemmdir.
Ef einhverjir hlutar virðast ekki vera hreinir skaltu
leggja þá í bleyti í 5 mínútur til viðbótar eins og lýst
er í Skrefi E4.
Notaðu ekki óhreina eða skemmda hluta.
Mynd E4
Skref E5 Hristu einstaka hluta til að fjarlægja mestallt vatnið.
Láttu alla hlutana loftþorna á hreinum klúti sem er
laus við ló.
Þegar allir hlutarnir eru fullkomlega þurrir skaltu
geyma þá í hreinum poka eða breiða yfir þá klút
sem er laus við ló.
Settu úðarann aftur saman rétt áður en hann er
notaður.
Mynd E5
VARÚÐ
Himna úðagjafans getur skemmst mjög
auðveldlega.
- Reyndu ekki að hreinsa úðagjafann með
bursta.
- Reyndu ekki að hreinsa eða sótthreinsa
úðagjafann í venjulegri uppþvottavél.
- Reyndu ekki að sótthreinsa úðagjafann
í örbylgjuofni.