I Inntaka lyfsins
308 eFlow
®
rapid nebuliser system – Hefurðu spurningar um tækið? Hafðu samband við þjónustuaðilann
Skref I6 Andaðu eðlilega gegnum munnstykkið. Þú ættir
að halda munnstykkinu í munninum allan tímann
meðan á meðferðinni stendur. Þegar þú andar frá
þér má sjá úða koma út úr bláa útöndunarlokanum
á munnstykkinu. Þetta er eðlilegt.
Andaðu ekki gegnum nefið.
Mynd I6
Skref I7 Til að gera hlé á meðferðinni.
Ýttu á OK hnappinn. Hléskipunin er virk þegar
skjámerkið fyrir hlé (Mynd I7b) birtist á skjá
controller-einingarinnar. Ýttu á OK hnappinn til að
halda meðferðinni áfram. Meðferðin heldur áfram
þegar skjámerkið fyrir meðferð birtist aftur á
skjánum.
Mynd I7a Mynd I7b
Skref I8 Þegar meðferðinni er lokið slekkur controller-
einingin á sér.
Þú heyrir tvö píp og gátmerkið „lyfjaskammti lokið“
birtist stutta stund á skjánum (Mynd I8).
Mynd I8
VARÚÐ
Haltu úðaranum láréttum því annars gæti
controller-einingin slökkt á sér áður en meðferð er
lokið.