86
3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XP Headset
MRX21A2WS6, MRX21A2WS6-ACK
MRX21P3E2WS6, MRX21P3E2WS6-ACK
3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPI Headset
MRX21A3WS6, MRX21A3WS6-ACK
MRX21P3E3WS6, MRX21P3E3WS6-ACK
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja samskiptalausn frá
3M™ PELTOR™! Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa
með samskiptabúnaði.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að veita
starfsmönnum vernd gegn hættulega háværum hljóðum
jafnframt því að gera notanda kleift að eiga fjarskipti með
innbyggðu Bluetooth
®
tækninni, heyra umhvershljóð í
umhvershljóðnemum og hlusta á viðtæki. Gert er ráð fyrir
því að allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar
notenda ásamt því að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningunum og farðu eftir þeim
áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M vegna allra annarra spurninga
og upplýsinga – (samskiptaupplýsingar er að nna á öftustu
síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr váhrifum vegna hættuleg hávaða
og annarra háværra hljóða.
Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til að kanna
rétta notkun. Ef þér nnst eins og þú sért með bómull í
eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yrgefa
hávaðasama umhverð umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið
fram yr dagleg hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Heyrnarhlífar festar á hjálm eru í stórri stærð. Heyrnarhlífar
sem uppfylla kröfur í EN 352-3 eru í millistærð eða litlar eða
stórar. Heyrnarhlífar í millistærð henta meirihluta notenda.
Litlar eða stórar heyrnarhlífar eru hannaðar fyrir notendur
sem ekki geta notað millistærðina.
• Frálag hljóðrásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram
yr dagleg vámörk hávaða.
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhvernu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við. Erðara getur reynst að
heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á meðan hlustað er
á afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengimu umhver
til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að notandinn felli
heyrnarhlífarnar vandlega að sér. Rannsóknir benda til þess
að hjá mörgum notendum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyngargildi á umbúðum gefa til kynna vegna frávika
við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig, færni
viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér gildandi reglur
um leiðbeiningar um aðlögun hljóðdeyngargilda. Séu
viðeigandi reglugerðir ekki til staðar er mælt með því að
draga úr suðhlutfallinu (SNR) til að auðvelda mat á
dæmigerðri vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið
fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að
deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhver.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau
ha sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt
annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar
o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
eyrnahlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspangarinnar og
gættu þess að hún sé nógu öug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í
leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir
notaðir reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi
vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum tilmælum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna alvarlega.
IS
** 3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPI Headset