EasyManua.ls Logo

KitchenAid 5KMC4241 - Page 314

KitchenAid 5KMC4241
416 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
314
UMHIRÐA OG HREINSUN
BILANALEIT
RÁÐ TIL AÐ NÁ FRÁBÆRUM ÁRANGRI
Ekki er nauðsynlegt að þíða frosið grænmeti
áður en því er bætt út í súpu til matreiðslu,
en það gæti þurft að lengja eldunartímann�
Þíða ætti frosið kjöt áður en það er eldað
í súpuhringrásinni, til að vera viss um að það
sé almennilega eldað í gegn�
Best er að bæta við mjólkurvörum eins og
rjóma, mjólk eða ostum nálægt lokum eldunar
til að koma í veg fyrir að það aðskiljist�
Rísottó:
Almennt séð ætti að snöggsteikja hrísgrjónin
fyrir rísottóið í einhvernskonar tu áður
en einhverjum af vökvunum í uppskriftinni
er bætt við� Leyfðu fjöleldunartækinu að
forhita á snöggsteikingarstiginu og bættu
síðan smjöri eða olíu við eins og útlistað er
í uppskriftinni þinni� Bættu við því magni af
hrísgrjónum sem tekið er fram í uppskriftinni
og hrærðu af og til í þeim í nokkrar mínútur
eða þangað til ytri brúnir hrísgrjónanna eru
hálfgegnsæjar en innihaldið er ennþá hvítt�
Í þessu skre er einnig hægt að bæta við og
elda önnur hráefni sem þarf að snöggsteikja
eins og lauk, hvítlauk eða grænmeti�
Ef uppskriftin kallar á vín skal bæta því við
á undan öðrum vökvum. Þetta leyr bragði
vínsins að smjúga inn í hrísgrjónin�
Hitaðu vökvana fyrir rísottó-uppskriftina
á eldavélinni eða í örbylgjuofni þar til þeir eru
mjög heitir, venjulega rétt undir suðumarki�
Bættu heitum vökvum við hrísgrjónin
í 240 ml skömmtum og hrærðu stöðugt
þar til næstum allur vökvinn hefur verið
tekinn upp áður en þú bætir meiru við�
Best er að bæta við osti, kryddjurtum eða
öðrum viðkvæmum hráefnum á síðustu
mínútum eldunarinnar
Til að koma í veg fyrir ofeldun og til að halda
áferð rísottósins rjómakenndri skal fjarlægja
eldunarpottinn af undirstöðu fjöleldunar-
tækisins eftir að uppskriftinni þinni er lokið
ef ekki á að bera það fram samstundis�
Hægeldun:
Það er almenn regla þegar þú notar uppáhalds
uppskriftirnar þínar í fjöleldunar tækinu að
auka magn kryddjurta og krydds til að vega
upp á móti áhrifum lengri eldunartíma�
Notaðu ekki frosið, óeldað kjöt í fjöleldunar-
tækinu� Alltaf skal þíða kjöt áður en það
er hægeldað� Stærð bitanna sem þú skerð
matvælin í kann að hafa áhrif á bragð
þeirra og áferð� Til að tryggja samræmi
í eldamennsku skaltu skera grænmeti með
svipaðan þéttleika, eins og kartöur, gulrætur
og nípur í bita af svipaðri stærð� Almennt séð
ætti þétt grænmeti að vera aðeins smærra
en mýkra grænmeti.
Að skera kjöt í stærri bita leyr lengri
eldunartíma og kemur í veg fyrir ofeldun�
Sum matvæli henta ekki fyrir langdregna
eldun. Bæta ætti pasta, skmeti, mjólk, rjóma
eða sýrðum rjóma við 2 klukkstundum áður
en borið er fram�
Bættu við skreytingum, ferskum kryddjurtum
og hraðelduðu grænmeti nálægt lokum
eldunarhringrásarinnar� Til dæmis getur þú
bætt við ertum, maís og nýsneiddu graskeri
á síðustu 10 til 20 mínútunum�
Jógúrt:
Hægt er að búa til jógúrt úr nýmjólk, léttmjólk
og tulausri mjólk. Nýmjólk eða 2% mjólk
skilar sér í jógúrt með þykkari áferð�
Til að ná sem bestum árangri skal kæla
jógúrt áður en mysa er sigtuð gegnum
grisju til að fá þykkari áferð�
Þegar þú byrjar að búa til þína eigin jógúrt
getur þú notað hluta af síðustu lögun
til að gera þá næstu� Aðeins skal gera
þetta 2-3 sinnum áður en þú byrjar aftur
með ferskan geril�
Handvirkt:
Þegar þú hitar mikið magn af vatni til
að elda pasta eða önnur matvæli skaltu
nota stillinguna Manual (Handvirku) á
hæstu hitastillingu, 230°C� Athugaðu að
skjárinn mun líklega halda áfram að etta
„preheating“ (forhitun) jafnvel eftir að vatnið
hefur náð að bullsjóða, þar sem einingin
skynjar hitastig vatnsins�
W10663380C_13_IS_v03.indd 314 3/12/15 4:28 PM

Table of Contents

Related product manuals