Íslenska – 1
Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi við
öryggisupplýsingar og leiðbeiningar getur það
haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða
alvarlegt líkamst
jón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Þegar talað er um rafhlöðu rafhjóls í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
rafhlöður fyrir rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart
system.
u Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir búnað
rafhjólsins sem og í notendahandbók rafhjólsins.
u Reynið ekki að festa hjólatölvuna eða stjórntölvuna á
ferð!
u Ekki skal láta skjá hjólatölvunnar beina athyglinni frá
umferðinni, sérstaklega það sem birtist á skjánum við
tilteknar aðstæður. Birting akstursupplýsinga má ekki
verða til þess að ekki sé sýnd nægileg aðgát þegar h
jólað
er. Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í kringum þig
er hætta á að þú lendir í slysi. Ef þú vilt gera meira í
hjólatölvunni en að breyta um akstursstillingu skaltu
stöðva hjólið fyrst.
u Ekki nota farsímann þegar þú ert á ferð. Ef þú ert ekki
með hugann við umferðina í kringum þig er hætta á að þú
lendir í slysi. Stöðvaðu hjólið fyrst.
u Stilla skal birtustigið á skjá hjólatölvunnar þannig að
mikilvægar upplýsingar á borð við hraða eða
viðvörunartákn sjáist greinilega. Ef birtustigið á sk
já
hjólatölvunnar er ekki rétt stillt getur það skapað hættu.
u Ekki má opna hjólatölvuna. Ef hjólatölvan er opnuð
getur það eyðilagt hana og ábyrgðin fellur úr gildi.
u Ekki má nota hjólatölvuna sem handfang. Ef rafhjólinu
er lyft upp með hjólatölvunni getur það valdið varanlegu
tjóni á hjólatölvunni.
u Ekki setja rafhjólið á hvolf á stýrið og hnakkinn þegar
hjólatölvan eða festing hennar standa út fyrir stýrið.
H
jólatölvan eða festingin geta orðið fyrir varanlegu tjóni.
Einnig skal taka hjólatölvuna af áður en rafhjólið er sett í
viðgerðastand til að koma í veg fyrir að hjólatölvan falli af
eða verði fyrir skemmdum.
u Í hjólatölvunniKiox 500 er búnaður sem gefur frá sér
hljóð. Við ákveðin skilyrði heyrast hávær hljóðmerki.
Hátt hljóðmerkið getur valdið heyrnarskemmdum.
Skal því halda hæfilegri fjarlægð frá hjólatölvunni.
Öryggisleiðbeiningar vegna leiðsögukerfis
u Ekki skipuleggja akstursleiðir á ferð. Stöðvaðu hjólið
áður en þú færir nýjan áfangastað inn í leiðsögukerfið.
Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í kringum þig er
hætta á að þú lendir í slysi.
u Ef leiðsögukerfið stingur upp á leið sem er áhættusöm
eða hættuleg fyrir þig skaltu ekki fylgja henni. Láttu
leiðsögukerfið stinga upp á annarri leið.
u Ekki hunsa umferðarskilti jafnvel þótt leiðsögukerfið
vísi þér tiltekna leið. Leiðsögukerfið getur ekki tekið tillit
til byggingasvæða eða tímabundinna h
jáleiða.
u Ekki skal nota leiðsögukerfið við hættulegar eða
ruglingslegar aðstæður (t.d. vegalokanir eða
hjáleiðir). Hafðu alltaf önnur kort og samskiptatæki
meðferðis.
Upplýsingar um persónuvernd
Þegar rafh
jólið er tengt við Bosch DiagnosticTool3 eða
þegar skipt er um hluta rafhjólsins er tæknilegum
upplýsingum um rafhjólið þitt (t.d. um framleiðanda, gerð,
auðkenni hjólsins, stillingagögn) og notkun þess (t.d. um
heildartíma á ferð, orkunotkun, hitastig) miðlað til Bosch
eBike Systems (Robert Bosch GmbH) í því skyni að vinna úr
fyrirspurn frá þér, veita þjónustu eða stuðla að vöruþróun.
Frekari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga er að
finna á www.bosch-ebike.com/privacy-full.
Athugaðu: Til að gera textann læsilegri eru sum gildi sýnd án
tugabrota. Þau eru þá námunduð upp eða niður.
Lýsing á vöru og eiginleikum
Fyrirhuguð notkun
H
jólatölvanKiox300/Kiox500 er ætluð til að birta
akstursupplýsingar á rafhjóli sem tilheyrir kynslóðinnithe
smart system.
Til þess að geta nýtt hjólatölvuna Kiox300/Kiox500 til fulls
þarf samhæfan farsíma með appinu eBike Flow.
Allt eftir stýrikerfi farsímans er hægt að sækja
appið eBike Flow ókeypis í Apple App Store
eða Google Play Store.
Skannaðu kóðann með farsímanum til að sækja
appið eBike Flow.
Leiðbeiningar um notkun appsins eBike Flow og frekari
upplýsingar er að finna í netútgáfu notendahandbókarinnar á
www.bosch-ebike.com/help-center
.
Hlutar á myndum
Númeraröð hluta á myndum miðast við hvernig þeir koma
fram á myndunum fremst í handbókinni.
(1)
Hjólatölva
(2)
Skjár
(3)
Strengúttak
(4)
Festiplata
(5)
Skjáfesting
(6)
Festikrókur
(7)
Tengi á festingu
(8)
Tengi á hjólatölvu
(9)
Rauf fyrir ól
a)
Bosch eBike Systems 0 275 007 3BK | (26.04.2024)