Íslenska – 2
Uppsetning
Athugaðu: Ekki skal nota sexkant með kúluhaus fyrir
sexkantskrúfur með flötum haus.
Athugaðu: Stýrin geta verið með tvenns konar þvermáli
(31,8mm og 35mm). Söluaðilinn aðstoðar þig við að vel
ja
réttan búnað.
Athugaðu: Gæta þarf þess að setja hjólatölvuna Purion 400
upp í þeirri stöðu sem mælt er með (sjá mynd A).
Fest á stýrið (sjá mynd B)
Dragðu klemmuna(4) dálítið í sundur og settu hana á stýrið
❶. Gættu þess að festiskrúfan(5) rispi ekki stýrið og að
klemman sé sett á sívala hluta stýrisins eins nálægt
stýrisstammanum og hægt er.
Settu krækju(6) hjólatölvunnar(1) í klemmuna(4) ❷.
Settu hjólatölvuna(1) niður og þrýstu opunum(7) á
festihjálpina(8) á klemmunni(4) ❸ þannig að þau smelli í.
Snúðu hjólatölvunni(1) með klemmunni(4) þannig að það
sjáist sem best á skjáinn á meðan verið er að hjóla (þegar
setið er á hnakknum).
Skrúfaðu síðan klemmuna og hjólatölvuna varlega fasta með
festiskrúfunni(5) ❹.
u Áður en byrjað er að nota hjólatölvuna skal taka
filmuna af skjánum til að tryggja að hjólatölvan virki
eins og hún á að gera. Ef filman er ekki tekin af sk
jánum
getur það haft truflandi áhrif á virkni/afköst
hjólatölvunnar.
Notkun
Hægt er að stjórna hjólatölvunni með einhverjum af
eftirfarandi stjórnbúnaði. Upplýsingar um virkni hnappana á
stjórnbúnaðinum koma fram í eftirfarandi yfirliti.
Valhnappurinn gegnir tvenns konar hlutverki eftir því hversu
lengi honum er haldið inni.
Athugaðu: Ekki er hægt að nota hjólatölvuna Purion 400
með stjórnbúnaðinum Purion 200.
Fimm hnappa stjórnbúnaður
Flett til vinstri
Flett til hægri
Stuðningur aukinn/flett upp
Stuðningur minnkaður/flett niður
Valhnappur/stillingavalmynd opnuð á stöðuskjá (ýtt)
Flýtivalmynd opnuð (úr hvað skjámynd sem er nema
stöðuskjá) (haldið inni >1sek.)
Þriggja hnappa stjórnbúnaður
Stuðningur aukinn/flett upp
Stuðningur minnkaður/flett niður
Valhnappur/flett milli skjámynda (ýtt)
Valhnappur/valmynd opnuð (haldið inni >1sek.)
Athugaðu: Með hnappinum á stjórnbúnaðinum er hægt
að staðfesta villukóða.
Athugaðu: Allar myndir af notendaviðmótinu og vísanir í
texta í notendaviðmótinu miðast við núverandi útgáfu
hugbúnaðarins. Þegar hugbúnaðurinn er uppfærður getur
verið að breytingar verði á myndrænni framsetningu, texta í
notendaviðmótinu og/eða eiginleikum.
Stöðuskjár
Af upphafssk
jánum er farið yfir í stöðuskjáinn með því að ýta
á hnappinn á fimm hnappa stjórnbúnaðinum og með því
að ýta endurtekið á hnappinn á þriggja hnappa
stjórnbúnaðinum.