EasyManua.ls Logo

Cube HYDE - Page 598

Cube HYDE
1195 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 4
Villur – orsakir og úrræði
Athugaðu: Fyrir innbyggðu rafhlöðu rafh
jólsins er hægt að sjá fyrirliggjandi villur í appinu eBike Flow. Fylgja skal
fyrirmælunum í appinu eBike Flow.
OrsökÚrræði
Rafhlaðan er í ólagi
Tvær ljósdíóður blikka á rafhlöðunni.
Snúðu þér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Rafhlaðan er of heit eða of köld
Þrjár ljósdíóður blikka á rafhlöðunni.
Taktu rafhlöðuna úr sambandi við hleðslutækið þar til
hitastigið er innan leyfilegra marka fyrir hleðslu.
Ekki tengja rafhlöðuna aftur við hleðslutækið fyrr en hitastig
hennar er aftur innan leyfilegra marka fyrir hleðslu.
Hleðslutækið hleður ekki.
Engin ljósdíóða blikkar (allt eftir hleðslustöðu
rafhlöðunnar loga ein eða fleiri ljósdíóður).
Snúðu þér til viðurkennds söluaðila reiðh
jóla.
Ekki er hægt að hlaða (engar upplýsingar á rafhlöðunni)
Klónni hefur ekki verið stungið rétt í samband Athugaðu allar tengingar.
Snertur á rafhlöðu óhreinar Hreinsaðu snerturnar á rafhlöðunni varlega.
Innstunga, snúra eða hleðslutæki í ólagi Athugaðu veituspennuna og láttu skoða hleðslutækið hjá
söluaðila.
Rafhlaðan er í ólagi Snúðu þér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Ef hleðslutækið bilar skal snúa sér til viðurkennds söluaðila
reiðh
jóla.
Þrífa skal hleðslutækið með þurrum klút.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og hluta þess skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance
.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Hægt er að skila tækinu til söluaðila ef hann býður upp á slíkt
eða ber lagaleg skylda til þess. Fara skal eftir gildandi lögum
og reglum hvað þetta varðar.
Skila skal drifeiningunni, hjólatölvunni ásamt
stjórnbúnaðinum, rafhlöðu rafhjólsins,
hraðaskynjaranum, aukabúnaði og umbúðum
til endurvinnslu með umhverfisvænum hætti.
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
persónuupplýsingum hafi verið eytt úr tækinu.
Ef hægt er að taka rafhlöður úr raftækinu án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en tækinu er fargað.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Með því að flokka raftækin sérstaklega er stuðlað að því að
hægt sé að meðhöndla þau og endurnýta hráefni með
viðeigandi hætti og vernda þannig heilsu manna og
umhverfið.
Breytingar áskildar.
0 275 007 3CX | (31.01.2024) Bosch eBike Systems

Table of Contents

Related product manuals