Íslenska – 1
Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi við
öryggisupplýsingar og leiðbeiningar getur það
haft í för með sér raflost, eldsvoða og/eða
alvarlegt líkamst
jón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Þegar talað er um rafhlöðu rafhjóls í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
rafhlöður fyrir rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart
system.
Þegar talað er um drif og drifeiningu í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
drifeiningar sem tilheyra kynslóðinni the smart system.
u Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir búnað
rafhjólsins sem og í notendahandbók rafhjólsins.
u Ekki skal láta skjá stjórnbúnaðarins beina athyglinni
frá umferðinni, sérstaklega það sem birtist á skjánum
við tilteknar aðstæður. Birting akstursupplýsinga má
ekki verða til þess að ekki sé sýnd nægileg aðgát þegar
h
jólað er. Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í
kringum þig er hætta á að þú lendir í slysi. Ef þú vilt gera
meira í stjórnbúnaðinum en að breyta um akstursstillingu
skaltu stöðva hjólið fyrst.
u Reynið ekki að festa hjólatölvuna eða stjórntölvuna á
ferð!
u Aðeins má nota teymingarhjálpina þegar rafhjólið er
teymt. Ef hjól rafhjólsins snerta ekki jörðu þegar
teymingarhjálpin er notuð skapast slysahætta.
u Þegar kveikt er á teymingarhjálpinni snúast fótstigin
hugsanlega líka. Þegar kveikt er á teymingarhjálpinni
þarf að gæta þess að fæturnir séu nægilega langt frá
fótstigunum sem snúast. Hætta er á meiðslum.
u Þegar teymingarhjálpin er notuð skal gæta þess að
hafa alltaf góða stjórn á rafhjólinu og gott tak á því. Við
tiltekin skilyrði getur teymingarh
jálpin hætt að virka (t.d.
vegna hindrunar á fótstiginu eða ef fingurinn fer óvart af
hnappinum á stjórntölvunni). Rafhjólið getur skyndilega
farið aftur á bak í átt að notanda eða oltið á hliðina. Af
þessu getur stafað hætta fyrir notandann, sérstaklega ef
farmur er á hjólinu. Þegar teymingarhjálpin er notuð
verður að gæta þess að lenda ekki í þannig aðstæðum
með rafhjólið að notandinn ráði ekki við það!
u Ekki setja rafhjólið á hvolf á stýrið og hnakkinn þegar
stjórntölvan eða festing hennar standa út fyrir stýrið.
St
jórntölvan eða festingin geta orðið fyrir varanlegu tjóni.
u Ekki má tengja hleðslutæki við rafhlöðu rafhjólsins ef
skjárinn á stjórntölvunni eða hjólatölvunni sýnir
alvarlega villu. Annars er hætta á að rafhlaða rafh
jólsins
eyðileggist, kviknað getur í rafhlöðu rafhjólsins og alvarleg
brunameiðsl og aðrir áverkar geta hlotist af.
u Stjórntölvan býður upp á þráðlausa tengingu. Virða
skal staðbundnar takmarkanir á notkun, t.d. í
flugvélum og á sjúkrahúsum.
u Varúð! Þegar stjórntölvan er notuð með Bluetooth® geta
komið upp truflanir í öðrum tækjum og kerfum, flugvélum
og lækningatækjum (t.d. hjartagangráðum og
heyrnartækjum). Einnig er ekki hægt að útiloka skaðleg
áhrif á fólk og dýr í nánasta umhverfi. Ekki má nota
stjórntölvuna með Bluetooth® nálægt lækningatækjum,
bensínstöðvum, efnageymslum, svæðum þar sem er
sprengihætta og á svæðum þar sem er sprengt. Ekki má
nota stjórntölvuna með Bluetooth® í flugvélum. Forðast
skal að nota búnaðinn í lengri tíma í senn nálægt
líkamanum.
u Orðmerkið Bluetooth® og myndmerkin (nafnmerkin) eru
skráð vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. Öll notkun
þessa orðmerkis/þessara myndmerkja af hálfu Robert
Bosch GmbH, Bosch eBike Systems er samkvæmt leyfi.
u Fylgja skal gildandi reglum um skráningu og notkun
rafhjóla á hverjum stað.
Öryggisleiðbeiningar fyrir hnapparafhlöður
VIÐVÖRUN! Geyma skal hnapparafhlöður
þar sem börn ná ekki til. Hnapparafhlöður eru
hættulegar.
Þegar varan er ekki á rafh
jólinu hentar hún ekki til notkunar á
stöðum þar sem börn geta verið nærri. Ef rafhlöðuhólfið
lokast ekki tryggilega skal hætta notkun vörunnar og geyma
hana þar sem börn ná ekki til.
u Alls ekki má kyngja hnapparafhlöðum eða setja þær
inn í önnur líkamsop. Ef grunur leikur á um að
hnapparafhlöðu hafi verið kyngt eða stungið inn í
annað líkamsop skal tafarlaust leita læknis. Inntaka
hnapparafhlöðu getur valdið alvarlegum efnabruna
innvortis og leitt til dauða á innan við tveimur
klukkustundum.
u Gæta skal þess að fara rétt að þegar skipt er um
hnapparafhlöðu. Hætta er á sprengingu.
u Aðeins skal nota þær hnapparafhlöður sem tilgreindar
eru í þessari notendahandbók. Ekki skal nota aðrar
hnapparafhlöður eða annars konar orkug
jafa.
u Ekki skal reyna að hlaða hnapparafhlöðuna og ekki má
valda skammhlaupi í henni. Hnapparafhlaðan getur
orðið óþétt, sprungið, brunnið og valdið meiðslum á fólki.
u Taka skal tómar hnapparafhlöður úr og farga þeim
með viðeigandi hætti. Tómar hnapparafhlöður geta
orðið óþéttar og valdið meiðslum á fólki eða skemmdum á
vörunni.
u Hnapparafhlaðan má ekki ofhitna og ekki má kasta
henni í eld. Hnapparafhlaðan getur orðið óþétt, sprungið,
brunnið og valdið meiðslum á fólki.
u Gæta skal þess að skemma ekki hnapparafhlöðuna og
ekki má taka hana í sundur. Hnapparafhlaðan getur
orðið óþétt, sprungið, brunnið og valdið meiðslum á fólki.
u Skemmd hnapparafhlaða má ekki komast í snertingu
við vatn. Ef litíum lekur úr rafhlöðunni og kemst í
snertingu við vatn getur það myndað vetni og þannig
orsakað eldsvoða, sprengingu eða slys á fólki.
Bosch eBike Systems 0 275 007 3RC | (20.02.2024)