EasyManua.ls Logo

Cube HYDE - Page 796

Cube HYDE
1195 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 6
Rafhjólið er kyrrstætt.
Farsíminn er tengdur við internetið.
Nægileg hleðsla er á rafhlöðu rafhjólsins og hleðslusnúran
er ekki tengd.
Hægt er að setja<eBike Lock> upp í appinueBike Flow, í
valmyndaratriðinu<Lock & Alarm>.
Drif rafhjólsins veitir ekki stuðning nema að farsíminn sé
tengdur við rafhjólið með Bluetooth® eða hjólatölvan sé í
festingunni þegar kveikt er á rafhjólinu. Þegar farsíminn er
notaður sem lykill þarf að vera kveikt á Bluetooth® í
farsímanum og appiðeBike Flow þarf að vera virkt í
bakgrunni. Þegar<eBike Lock> er virkur er áfram hægt að
nota rafhjólið án stuðnings frá drifeiningunni.
Samhæfi
<eBike Lock> er samhæfur við allar Bosch-drifeiningar sem
tilheyra kynslóðinni the smart system.
Virkni
Með<eBike Lock> virka farsíminn og hjólatölvan eins og
lykill fyrir drifeininguna. <eBike Lock> verður virkur þegar
slökkt er á rafhjólinu. Þegar kveikt er á rafhjólinu athugar það
hvort fyrirfram skilgreindur lykill er fyrir hendi. Það er gefið
til kynna með hvítu blikkandi ljósi á stjórnbúnaðinum System
Controller og með lástákni á hjólatölvunni.
Athugaðu:<eBike Lock> er ekki þjófavörn, heldur viðbót
við vélrænan lás! Með <eBike Lock> er rafhjólinu ekki læst
vélrænt eða með álíka hætti. Aðeins er slökkt á stuðningi frá
drifeiningunni. Drifeiningin er tekin úr lás á meðan farsíminn
er tengdur við rafhjólið í gegnum Bluetooth® eða hjólatölvan
er í festingunni.
Þegar leyfa á öðrum að nota hjólið, tímabundið eða
varanlega, skal láta viðkomandi fá stafrænan lykil sem
búið er að skilgreina (hjólatölvu/farsíma). Þannig er
<eBike Lock> áfram virkur. Þegar fara á með rafhjólið á
verkstæði skal gera <eBike Lock> óvirkan í appinu eBike
Flow í valmyndaratriðinu <Settings>. Ef selja á rafhjólið
skal einnig fjarlægja rafhjólið úr notandareikningnum í
appinu eBike Flow í valmyndaratriðinu <Settings>.
Þegar slökkt er á rafhjólinu gefur drifeiningin frá sér
læsingartón (eitt hljóðmerki) til að gefa til kynna að slökkt sé
á stuðningi frá drifinu.
Þegar kveikt er á rafhjólinu gefur drifeiningin frá sér tvo
aflæsingartóna (tvö hljóðmerki) til að gefa til kynna að
stuðningur frá drifinu sé aftur í boði.
Læsingartónninn hjálpar þér að greina hvort<eBike Lock>
er virkur á rafhjólinu. Hljóðmerkið er sjálfkrafa virkt en hægt
er að gera það óvirkt í appinueBike Flow í
valmyndaratriðinu<Locking sound> með því að velja
lástáknið fyrir neðan rafhjólið.
Athugaðu: Ef ekki er lengur hægt að setja upp eða slökkva
á<eBike Lock> skaltu snúa þér til söluaðila reiðhjólsins.
Skipt um hluta rafhjólsins og <eBike Lock>
Skipt um farsíma
1. Settu appiðeBike Flow upp í nýja farsímanum.
2. Skráðu þig inn með sama notandareikningi og þú
notaðir til að virkja<eBike Lock>.
3. Í appinueBike Flow er gefið til kynna að búið sé að
setja<eBike Lock> upp.
Frekari upplýsingar um þetta er að finna í appinu eBike Flow
eða í Bosch eBike Help Center á vefsíðunni
www.bosch-ebike.com/help-center
.
Hugbúnaðaruppfærslur
Setja verður hugbúnaðaruppfærslur í gang handvirkt í
appinueBike Flow.
Appið flytur hugbúnaðaruppfærslur yfir í stjórntölvuna í
bakgrunni um leið og búið er að tengja hana við appið.
Meðan á uppfærslunni stendur blikkar hleðsluvísirinn fyrir
rafhlöðu rafhjólsins(13) í grænum lit til að gefa framvinduna
til kynna. Því næst er rafhjólið endurræst.
Hugbúnaðaruppfærslum er stjórnað af appinueBike Flow.
Tenging System Controller við Mini Remote/Mini
Remote Dropbar
Stjórnbúnaðurinn System Controller og stjórnbúnaðurinn
Mini Remote/Mini Remote Dropbar eru tengdir saman með
Bluetooth®.
Kveiktu á rafhjólinu án þess að hjóla af stað.
Ef stjórnbúnaðurinn Mini Remote/Mini Remote Dropbar
hefur ekki verið tengdur við System Controller hjá söluaðila
reiðhjólsins skal gera eftirfarandi:
1. Notaðu fyrst appið eBike Flow til að tengja farsímann
við System Controller (sjá „Farsími tengdur við System
Controller“, Bls.Íslenska – 5).
2. Í appinu skaltu velja eBike Flow <Settings> <My
eBike> <eBike pass> <Components> <Add
new device>. Veldu síðan <Mini Remote/Mini Remote
Dropbar>.
3. Mini Remote/Mini Remote Dropbar: Settu pörun í
gang með því að ýta á einhvern hnapp þar til pörun er
gefin til kynna með því að LED-gaumljósið(3) blikkar í
bláum lit.
4. Fylgdu leiðbeiningunum í appinu eBike Flow.
Innan 30sekúndna er gefið til kynna á stjórnbúnaðinum Mini
Remote/Mini Remote Dropbar að pörunin hafi tekist með
því að LED-gaumljósið (3) blikkar 3× í grænum lit.
Ef ekki tekst á koma á tengingu blikkar LED-gaumljósið(3)
3× í rauðum lit. Endurtaka þarf ferlið.
Ef tengja á stjórnbúnaðinn Mini Remote/Mini Remote
Dropbar við System Controller fyrir annað rafhjól skal gera
eftirfarandi:
1. Notaðu fyrst appið eBike Flow til að tengja farsímann
við System Controller (sjá „Farsími tengdur við System
Controller“, Bls.Íslenska – 5).
2. Í appinu skaltu velja eBike Flow <Settings> <My
eBike> <eBike pass> <Components> <Add
new device>. Veldu síðan <Mini Remote/Mini Remote
Dropbar>.
3. Mini Remote/Mini Remote Dropbar: Taktu
hnapparafhlöðuna úr stjórnbúnaðinum Mini Remote/
Mini Remote Dropbar og bíddu í að minnsta kosti
0 275 007 3RC | (20.02.2024) Bosch eBike Systems

Table of Contents

Related product manuals