EasyManua.ls Logo

KitchenAid 5KES2102 - Að Nota Espressó-Vélina; Að Laga Espressó

KitchenAid 5KES2102
292 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
203
Íslenska
10. Þegar kannan er u.þ.b. hálf full skaltu sleppa „ “ hnappinum
og loka „ “ skífunni með því að snúa henni réttsælis þar til
hún stöðvast. Froðuketillinn er nú tilbúinn til notkunar.
11. Sé ekki ætlunin að laga espressó að þessu sinni skaltu ýta
á „ “ hnappinn og slökkva á Espressó-vélinni.
ATH.: Ekki ýta á „ “ eða „ “ hnappana án þess að hafa vatn
í geyminum. Vatnsdælan gæti skemmst.
Fyrir fullkominn árangur þegar hellt er upp á espressó,
sjá hlutann „Fyrir lögun: Grunnþættir frábærs Espressó“.
1. Gakktu úr skugga um að að nóg vatn sé í vatnsgeyminum
(vatnsborðið ætti að vera milli „max“ og „min“ línanna).
2. Veldu annað hvort minni eða stærri síuna. Notið þá minni fyrir
stakan bolla (30 ml) af espressó,og þá stærri fyrir tvo bolla
(60 ml). Minni síuna má nota með þar til gerðum kaffipúðum.
3. Þrýstu síunni inn í greipina, þar til hún smellur á sinn stað.
Ekki fylla síugreipina af kaffi að svo stöddu.
4. Staðsettu síugreipina undir lögunarhausnum og láttu handfang
hennar nema við „ “ á vinstri brún málmhringsins. Lyftu
síugreipinni upp í lögunarhausinn, færðu síðan handfang
greiparinnar til hægri, svo það nemi við „ “ á málmhringnum.
5. Ýttu á „ “ hnappinn til að kveikja á Espressó-vélinni.
6. Bíddu þar til Espressó-vélin hefur náð tilsettum hita;
það tekur um 6 mínútur.
Þegar nálin á hitamæli espressó-ketilsins fer inn á „ “ svæðið
er Espressó-vélin tilbúin til að laga kaffi.
7. Fjarlægðu síugreipina frá lögunarhausnum með því að snúa
handfanginu til vinstri. Settu einn skammt af möluðu kaffi
(eða þar til gerðan kaffipúða) í minni síuna, eða tvöfaldan
skammt í þá stærri. Vertu viss um að nota fínmalað
espressó-kaffi í lögunina.
8. Notaðu þjöppuna til að þjappa kaffinu þétt með snúnings-
hreyfingu niður í síukörfuna. Gakktu úr skugga um
að yfirborð kaffisins í síunni sé eins jafn og hægt er.
Sjá hlutana Jöfnun“ og „Þjöppun“ vegna frekari ítaratriða.
9. Strjúktu af öll kaffikorn sem kunna að hafa orðið eftir á brún
síugreiparinnar, og komdu henni fyrir í lögunarhausnum.
10. Settu einn eða tvo espressó-bolla á lekabakkann undir
stútunum á síugreipinni. Ýttu á „ “ hnappinn og espressóið
fer að renna í bollana. Þegar hellt hefur verið upp
á óskað magn af espressó skaltu ýta á, „ “ hnappinn
til hætta lögun.
ATH.: Ekki fjarlægja síugreipina á meðan hellt er upp á.
ESPRESSO-VÉLIN UNDIRBÚIN FYRIR NOTKUN
ESPRESSO-VÉLIN UNDIRBÚIN FYRIR NOTKUN
AÐ NOTA ESPRESSO-VÉLINA
Að laga espressó
W10553375B_13_IS_v03.indd 203 8/28/17 2:21 PM

Table of Contents

Related product manuals