Íslenska – 2
Lýsing á vöru og eiginleikum
Fyrirhuguð notkun
StjórnbúnaðurinnPurion200 er ætlaður til að stýra rafhjóli
og einnig má nota hann til að stjórna hjólatölvu sem tilheyrir
kynslóðinnithe smart system. Ef farsími er látinn gegna
hlutverki hjólatölvu er einnig hægt að nota
stjórnbúnaðinnPurion200 til að stjórna appinueBike Flow.
Til þess að geta nýtt stjórntölvuna til fulls þarf samhæfan
farsíma með appinu eBike Flow.
Hægt er að tengja stjórntölvuna Purion200 við farsímann
með Bluetooth®.
Allt eftir stýrikerfi farsímans er hægt að sækja
appið eBike Flow ókeypis í Apple App Store
eða Google Play Store.
Skannaðu kóðann með farsímanum til að sækja
appið eBike Flow.
Hlutar á mynd
Númeraröð hluta á myndum miðast við hvernig þeir koma
fram á myndunum fremst í handbókinni.
Allar myndir af hlutum reiðhjóla, að undanskildum
drifeiningunni, hjólatölvu með stjórntölvu, hraðaskynjara og
tilheyrandi festingum, eru til viðmiðunar og geta verið
frábrugðnar rafhjóli notanda.
(1)
Hnappur til að kveikja/slökkva
(2)
Skjár
(3)
Birtuskynjari
(4)
Valhnappur
(5)Hnappur til að auka stuðning +/
hjólaljós
(6)Hnappur til að minnka stuðning –/
teymingarhjálp
(7)
Festing
(8)
Festiskrúfa
(9)
Greiningartengi (eingöngu vegna viðhalds)
(10)
Hnappur til að fletta til vinstri
(11)
Hnappur til að fletta til hægri
Tæknilegar upplýsingar
StjórnbúnaðurPurion 200
Vörukóði BRC3800
Hleðslustraumur USB-tengis
hám.
A)
mA 600
Hleðsluspenna USB-tengis
A)
V 5
USB-hleðslusnúra
B)
USB Type‑C®
C)
Hleðsluhitastig °C 0 ... +40
Notkunarhitastig °C −5 ... +40
Geymsluhitastig °C +10 ... +40
Greiningartengi USB Type‑C®
C)
StjórnbúnaðurPurion 200
Innbyggð litíumjónarafhlaða V
mAh
3,7
75
Varnarflokkur IP55
Mál (án festingar) mm 85 × 54 × 60
Þyngd g 49
Bluetooth® Low Energy 5.0
– Tíðni MHz 2400–2480
– Sendistyrkur mW 1
A)
Upplýsingarnar eiga við um hleðslu á stjórntölvunni Purion200;
ekki er hægt að hlaða ytri tæki.
B) Fylgir ekki með
C) USBType‑C® og USB‑C® eru vörumerki í eigu USB Implementers
Forums.
Leyfisupplýsingar fyrir vöruna er að finna á eftirfarandi vefslóð:
www.bosch-ebike.com/licences
Samræmisyfirlýsing
Hér með lýsir Robert Bosch GmbH, Bosch eBike Systems,
því yfir að þráðlausi fjarskiptabúnaðurinn af gerðinni
Purion200 er í samræmi við tilskipun 2014/53/EU. Nálgast
má texta ESB-samræmisyfirlýsingarinnar í heild sinni á
eftirfarandi vefslóð: www.bosch-ebike.com/conformity
.
Upplýsingar um vottun
Vottunarnúmer (E-merkingar) er að finna á stöðuskjánum
undir<Settings>→ <Information>→ <Certificates>. Flett
er í gegnum E-merkingarnar með því að ýta á hnappinn til að
fletta áfram(11).
Athugaðu: Til þess að sjá upplýsingar um E-
merkinguPurion200 getur fyrst þurft að fjarlægja hjólatölvu
sem sett hefur verið upp til viðbótar eða loka skjámyndinni
„Ride“ í appinueBike Flow ef farsími er notaður.
Notkun
Skilyrði
Ekki er hægt að kveikja á rafhjólinu nema að eftirfarandi
skilyrði séu uppfyllt:
– Rafhlaða með nægilegri hleðslu er í rafhjólinu (sjá
notendahandbókina fyrir rafhlöðu rafhjóls sem tilheyrir
kynslóðinni the smart system).
– Hraðaskynjarinn er rétt tengdur (sjá notendahandbók
drifeiningar sem tilheyrir kynslóðinni the smart system).
Áður en tækið er tekið í notkun
u Áður en byrjað er að nota hjólatölvuna skal taka
filmuna af skjánum til að tryggja að hjólatölvan virki
eins og hún á að gera. Ef filman er ekki tekin af sk
jánum
getur það haft truflandi áhrif á virkni/afköst
hjólatölvunnar.
Áður en þú hjólar af stað skaltu ganga úr skugga um að þú
náir vel til hnappanna á stjórntölvunni. Mælt er með því að
láta plús-/mínushnappana snúa næstum lóðrétt að jörðu.
0 275 007 3RP | (02.05.2024) Bosch eBike Systems