EasyManua.ls Logo

Cube HYDE - Page 1028

Cube HYDE
1195 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 7
Samhæfi
<eBike Lock> er samhæfur við allar Bosch-drifeiningar sem
tilheyra kynslóðinni the smart system.
Virkni
Með<eBike Lock> virka farsíminn og h
jólatölvan eins og
lykill fyrir drifeininguna. <eBike Lock> verður virkur þegar
slökkt er á rafhjólinu. Þegar kveikt er á rafhjólinu athugar það
hvort fyrirfram skilgreindur lykill er fyrir hendi. Það er gefið
til kynna með lástákni á stjórnbúnaðinum Purion 200.
Athugaðu:<eBike Lock> er ekki þjófavörn, heldur viðbót
við vélrænan lás! Með <eBike Lock> er rafhjólinu ekki læst
vélrænt eða með álíka hætti. Aðeins er slökkt á stuðningi frá
drifeiningunni. Drifeiningin er tekin úr lás á meðan farsíminn
er tengdur við rafhjólið í gegnum Bluetooth® eða hjólatölvan
er í festingunni.
Þegar leyfa á öðrum að nota hjólið, tímabundið eða
varanlega, skal láta viðkomandi fá stafrænan lykil sem
búið er að skilgreina (hjólatölvu/farsíma). Þannig er
<eBike Lock> áfram virkur. Þegar fara á með rafhjólið á
verkstæði skal gera <eBike Lock> óvirkan í appinu eBike
Flow í valmyndaratriðinu <Settings>. Ef selja á rafhjólið
skal einnig fjarlægja rafhjólið úr notandareikningnum í
appinu eBike Flow í valmyndaratriðinu <Settings>.
Þegar slökkt er á rafhjólinu gefur drifeiningin frá sér
læsingartón (eitt hljóðmerki) til að gefa til kynna að slökkt sé
á stuðningi frá drifinu.
Þegar kveikt er á rafhjólinu gefur drifeiningin frá sér tvo
aflæsingartóna (tvö hljóðmerki) til að gefa til kynna að
stuðningur frá drifinu sé aftur í boði.
Læsingartónninn hjálpar þér að greina hvort<eBike Lock>
er virkur á rafhjólinu. Hljóðmerkið er sjálfkrafa virkt en hægt
er að gera það óvirkt í appinueBike Flow í
valmyndaratriðinu<Locking sound> með því að velja
lástáknið fyrir neðan rafhjólið.
Athugaðu: Ef ekki er lengur hægt að setja upp eða slökkva
á<eBike Lock> skaltu snúa þér til söluaðila reiðhjólsins.
Skipt um hluta rafhjólsins og <eBike Lock>
Skipt um farsíma
1. Settu appiðeBike Flow upp í nýja farsímanum.
2. Skráðu þig inn með sama notandareikningi og þú
notaðir til að virkja<eBike Lock>.
3. Í appinueBike Flow er gefið til kynna að búið sé að
setja<eBike Lock> upp.
Frekari upplýsingar um þetta er að finna í appinu eBike Flow
eða í Bosch eBike Help Center á vefsíðunni
www.bosch-ebike.com/help-center
.
Hugbúnaðaruppfærslur
Setja verður hugbúnaðaruppfærslur í gang handvirkt í
appinueBike Flow.
Appið flytur hugbúnaðaruppfærslur yfir í stjórnbúnaðinn í
bakgrunni um leið og búið er að tengja hann við appið.
Fylgjast þarf með skjá stjórnbúnaðarinsPurion200 á meðan
hugbúnaðaruppfærslan fer fram. Því næst er rafhjólið
endurræst.
Hugbúnaðaruppfærslum er stjórnað með appinueBike
Flow.
Villuboð
Villuboð birtast í sprettigluggum á skjá
stjórnbúnaðarinsPurion200.
Stjórntölvan gefur til kynna þegar alvarlegar eða minniháttar
villur koma upp í rafhjólinu.
Hægt er að lesa villuboðin frá rafhjólinu í appinu eBike Flow
eða hjá söluaðila.
Með tengli í appinu eBike Flow er hægt að nálgast
upplýsingar um villuna og fá aðstoð við að lagfæra hana.
Minniháttar villur
Villur eru staðfestar með því að ýta á valhnappinn(4).
Með hjálp eftirfarandi töflu getur notandi reynt að lagfæra
villuna á eigin spýtur. Annars skal leita aðstoðar hjá
söluaðila.
NúmerVilla lagfærð
523005
Villunúmerin gefa til kynna að orðið hafa
truflanir við greiningu skynjara á segulsviði.
Athugaðu hvort segullinn hefur glatast á
ferð.
Ef notaður er segulskynjari skal athuga hvort
skynjarinn og segullinn hafa verið settir upp
á réttan hátt. Einnig skal ganga úr skugga um
að snúran til skynjarans sé óskemmd.
Ef notaður er gjarðarsegull skal gæta þess að
ekki séu truflandi segulsvið nálægt
drifeiningunni.
514001
514002
514003
514006
680007
Villunúmerin gefa til kynna að hitastig
rafhlöðu rafhjólsins er utan leyfilegra marka.
Hætt er að hlaða rafhlöðu rafhjólsins.
Haldið er áfram með hleðsluna þegar
hitastigið er aftur innan leyfilegra marka.
680009
680012
680014
680016
680017
Alvarlegar villur
Þegar alvarleg villa kemur upp skal fylgja leiðbeiningunum í
töflunni hér fyrir neðan.
NúmerLeiðbeiningar
6A0004
Fjarlægðu PowerMore-rafhlöðuna og
endurræstu rafhjólið.
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi skaltu
snúa þér til söluaðila.
890000
Staðfestu villukóðann.
Endurræstu rafhjólskerfið.
Ef vandamálið er áfram fyrir hendi:
Staðfestu villukóðann.
Framkvæmdu hugbúnaðaruppfærslu.
Endurræstu rafhjólskerfið.
Bosch eBike Systems 0 275 007 3RP | (02.05.2024)

Table of Contents

Related product manuals