EasyManua.ls Logo

Cube HYDE - Page 688

Cube HYDE
1195 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 3
Hleðsluvísir fyrir rafhlöðu rafhjóls
Í hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu rafhjólsins(3) jafngildir hvert
ljósblátt strik 20% hleðslu og hvert hvítt strik 10% hleðslu.
Efsta strikið gefur til kynna hámarkshleðslu.
Dæmi: Sýnd eru fjögur ljósblá strik og eitt hvítt strik.
Hleðslan er á bilinu 81% til 90%.
Þegar lítil hleðsla er á rafhlöðunni breyta báðir neðri vísarnir
um lit:
StrikHleðsla
2 × appelsínugul 30% ... 21%
1 × appelsínugult 20% ... 11%
1 × rautt 10% ... varahleðsla
1 × rautt blikkandi Varahleðsla ... tóm
Á meðan verið er að hlaða rafhlöðu rafhjólsins blikkar efsta
strikið í hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu rafhjólsins(3).
Einnig er hægt að sjá hleðslustöðuna á ljósdíóðunum á
rafhlöðu rafhjólsins.
Akstursstilling valin
Á stjórnbúnaðinum eru hnappurinn til að minnka stuðning
(9) og hnappurinn til að auka stuðning +(10) notaðir til að
stilla hversu mikinn stuðning drifið á að veita. Hægt er að
breyta akstursstillingunni á ferð og er stillingin gefin til kynna
með litamerki.
Aksturs-
stilling
Upplýsingar
OFF
Slökkt er á stuðningi drifsins, hægt er að hjóla á
rafhjólinu eins og á venjulegu reiðhjóli með því
að stíga á fótstigin.
ECO
Virkur stuðningur með mestri skilvirkni, fyrir
hámarksdrægi
ECO+
Akstursstilling fyrir sem mest drægi, sem
kveikir ekki á drifstuðningi fyrr en hjólað er með
afli yfir ákveðnum mörkum; fyrir eðlilegar
hjólreiðar með sem mestu drægi
TOUR
Jafn stuðningur fyrir ferðir með miklu drægi
TOUR+
Breytilegur stuðningur fyrir venjulegar og
sportlegar hjólreiðar
eMTB
Sem bestur stuðningur við allar aðstæður, tekið
sportlega af stað, betri kraftur, hámarksafköst
SPORT
Kraftmikill stuðningur fyrir sportlegar hjólreiðar
í hæðóttu landslagi og innanbæjar
TURBO
Hámarksstuðningur upp að miklum
snúningshraða sveifar, fyrir sportlegar
hjólreiðar
AUTO
Stuðningurinn er lagaður sjálfkrafa að
akstursskilyrðum hverju sinni.
RACE
Hámarksstuðningur á brautum fyrir rafknúin
fjallahjól; mikil snerpa og „Extended Boost“ fyrir
sem mest afköst í keppnum
CARGO
Jafn og kraftmikill stuðningur til að geta flutt
þunga byrði með öruggum hætti
Aksturs-
stilling
Upplýsingar
SPRINT
Breytilegur stuðningur eftir snúningshraða
sveifar – fyrir sportlega notkun rafhjólsins á möl
og vegum með hröðum köflum og tíðum
brekkum
LIMIT
A)
Stuðningur lagaður sjálfkrafa að
akstursskilyrðum með sem bestum hætti upp í
að hámarki 25km/klst. fyrir hægari og
orkusparandi notkun S-Pedelec-hjóls
innanbæjar sem og hópferðir með venjulegum
rafhjólum
A) Aðeins fyrir S-Pedelec-hjól í Evrópusambandinu með
Performance Line Speed
Þegar akstursstillingin LIMIT er virkjuð breytir það ekki stöðu S-
Pedelec-hjólsins.
Heiti og útfærslur á akstursstillingum geta verið forstillt hjá
framleiðanda og valin af söluaðila reiðhjólsins.
Athugaðu: Það hvaða akstursstillingar eru í boði fer eftir
drifeiningunni hverju sinni.
Akstursstillingu breytt
Hægt er að breyta akstursstillingunum innan vissra marka í
appinu eBike Flow. Þannig er hægt að laga rafhjólið að
þörfum notandans.
Ekki er hægt að búa til sína eigin akstursstillingu frá grunni.
Aðeins er hægt að breyta þeim akstursstillingum sem
framleiðandi eða söluaðili hafa leyft til notkunar í kerfinu. Um
minna en fjórar akstursstillingar getur einnig verið að ræða.
Auk þess getur verið að ekki sé hægt að breyta
akstursstillingunum vegna takmarkana sem gilda í þínu landi.
Hægt er að breyta eftirfarandi atriðum:
Stuðningi í hlutfalli við grunngildi akstursstillingar (innan
lagalegra marka)
Snerpu drifsins
Hraðalækkunarmörkum (innan lagalegra marka)
Hámarkstogi (innan marka drifsins)
Athugaðu: Breytta akstursstillingin er áfram með sömu
stöðu, sama heiti og sama lit á öllum hjólatölvum og
stjórntækjum.
Samspil drifeiningar og gírskiptingar
Jafnvel þótt um rafhjól sé að ræða er gírskiptingin notuð með
sama hætti og á venjulegu reiðhjóli (sjá notendahandbók
rafhjólsins).
Óháð því um hvernig gírskiptingu er að ræða er mælt með því
að stíga léttar á fótstigin í stutta stund á meðan skipt er um
gír. Þannig verður auðveldara að skipta um gír og dregið er úr
sliti á aflrásinni.
Með því að setja í réttan gír er hægt að auka hraðann og
drægið án þess að leggja meira á sig.
Þess vegna skaltu fylgja ráðleggingunum um gírskiptingu sem
birtast í hjólatölvunni.
Kveikt/slökkt á ljósunum á hjólinu
Áður en hjólað er af stað skal ganga úr skugga um að ljósin á
hjólinu virki rétt.
Bosch eBike Systems 0 275 007 3RL | (25.02.2024)

Table of Contents

Related product manuals