EasyManua.ls Logo

Cube HYDE - Page 689

Cube HYDE
1195 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 4
Kveikt er á ljósunum á hjólinu með því að halda hnappinum
fyrir hjólaljós(10) inni í meira en 1sek.
Með hnöppunum til að minnka birtustig(11) og auka
birtustig(12) er hægt að stjórna birtustigi ljósdíóðanna á
stjórntölvunni.
Kveikt og slökkt á teymingarhjálp
Teymingarhjálpin getur auðveldað þér að teyma rafhjólið.
Hraðinn fyrir teymingarhjálpina er að hámarki 4km/h.
Forstillingin frá framleiðanda getur verið lægri og hægt er að
láta söluaðila reiðhjólsins breyta henni ef þess þarf.
u Aðeins má nota teymingarhjálpina þegar rafhjólið er
teymt. Ef hjól rafhjólsins snerta ekki jörðu þegar
teymingarhjálpin er notuð skapast slysahætta.
u Ef valinn er of hár gír getur drifeiningin hvorki hreyft
rafhjólið úr stað né virkjað rennivörnina.
Teymingarh
jálpin er sett í gang með því að ýta á hnappinn
fyrir teymingarhjálpina(9) og halda honum inni í meira en
1sek. Það slokknar á hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu
rafhjólsins(3) og hvítt ljós sem hreyfist í akstursátt gefur til
kynna að hjólið sé tilbúið til notkunar.
Til að virkja teymingarhjálpina verður að gera eitthvað af
eftirfarandi innan næstu 10sekúndna:
Ýttu rafhjólinu áfram.
Ýttu rafhjólinu aftur á bak.
Hallaðu rafhjólinu til hliðar.
Þegar búið er að virkja teymingarhjálpina byrjar drifið að ýta
hjólinu og hvítu strikin verða ljósblá á litinn.
Þegar hnappinum fyrir teymingarhjálp(9) er sleppt er gert
hlé á teymingarhjálpinni. Hægt er að gera teymingarhjálpina
virka aftur með því að ýta á hnappinn fyrir teymingarhjálp(9)
innan 10sek.
Ef teymingarhjálpin er ekki gerð virk aftur innan 10sekúndna
slekkur hún sjálfkrafa á sér.
Alltaf er slökkt á teymingarhjálpinni þegar
afturhjólið læsist,
ekki er hægt að hjóla yfir fyrirstöður,
líkamshluti hindrar hreyfingu sveifarinnar á hjólinu,
hindrun snýr sveifinni áfram,
notandi stígur á fótstigin,
ýtt er á hnappinn til að auka stuðning +/hjólaljós(10) eða
hnappinn til að kveikja/slökkva(2).
Teymingarhjálpin er með rennivörn, sem þýðir að jafnvel þótt
teymingarhjálpin sé notuð hemlar drifið í nokkrar sekúndur
til að koma í veg fyrir að hjólið renni aftur á bak og ýmist er
ekki hægt að ýta rafhjólinu aftur á bak eða þá einungis með
erfiðismunum.
Slökkt er á rennivörninni um leið og ýtt er á hnappinn til að
auka stuðning +/hjólaljós(10).
Virkni teymingarhjálparinnar fer eftir reglum í hverju landi
fyrir sig og getur hún því ýmist verið með öðrum hætti en lýst
er hér að ofan eða óvirk.
ABS – hemlalæsivörn (aukabúnaður)
Ef rafhjólið er búið ABS-kerfi frá Bosch sem tilheyrir
kynslóðinnithe smart system kviknar á ABS-ljósinu(4)
þegar rafhjólið er sett í gang.
Þegar hjólað er af stað framkvæmir ABS-kerfið innri
virkniprófun og ABS-ljósið slokknar.
Þegar um villu er að ræða logar ABS-ljósið(4) og ljósið fyrir
akstursstillingu(5) blikkar í appelsínugulum lit. Hægt er að
staðfesta villuna með valhnappinum(7) og slokknar þá á
blikkandi ljósinu fyrir akstursstillingu(5). Á meðan ABS-
ljósið(4) logar er ABS-kerfið ekki virkt.
Nánari upplýsingar um ABS-kerfið og virkni þess er að finna í
notendahandbókinni fyrir ABS-kerfið.
Tengst við farsíma
Til þess að hægt sé að nota eftirfarandi eiginleika rafhjólsins
þarf farsíma með appinueBike Flow.
Tengst er við appið með Bluetooth®.
Kveiktu á rafhjólinu og bíddu þar til hreyfimyndin fyrir
ræsingu birtist. Ekki hjóla af stað.
Settu Bluetooth®-pörunina í gang með því að halda
hnappinum til að kveikja/slökkva(2) inni (>3sek.). Slepptu
hnappinum til að kveikja/slökkva(2) um leið og efsta strikið í
hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu rafhjólsins(3) gefur pörun til
kynna með því að blikka í bláum lit.
Staðfestu fyrirspurnina um tengingu í appinu.
Virkniskráning
Til þess að skrá upplýsingar um virkni þarf að nýskrá sig eða
skrá sig inn í appinu eBike Flow.
Til þess að hægt sé að skrá upplýsingar um virkni þarftu að
samþykkja að staðsetningarupplýsingar séu vistaðar í
appinu. Þetta er nauðsynlegt til þess að hægt sé að skrá
virkni þína í appinu. Til þess að hægt sé að skrá
staðsetningarupplýsingar þarftu að vera skráð(ur) inn sem
notandi.
eBike Lock
Hægt er að setja <eBike Lock> upp fyrir öll rafhjól með
appinu eBike Flow, undir <Settings> <My eBike>
<Lock & Alarm>. Er þá vistaður lykill í farsímanum og/eða
hjólatölvunni Kiox300/Kiox500 sem er notaður til að taka
rafhjólið úr lás.
Í eftirfarandi tilvikum er <eBike Lock> settur sjálfkrafa á:
þegar slökkt er á rafhjólinu með stjórnbúnaðinum
þegar slökkt er sjálfkrafa á rafhjólinu
Rafhjólið er tekið úr lás þegar kveikt er á því og farsíminn er
tengdur við rafhjólið í gegnum Bluetooth® eða þegar
fyrirfram skilgreinda hjólatölvan er sett í festinguna.
<eBike Lock> er bundinn við notandareikninginn þinn.
Ef þú týnir farsímanum þínum getur þú skráð þig inn með
appinu eBike Flow og notandareikningnum þínum í öðrum
farsíma til þess að taka rafhjólið úr lás.
Ef hjólatölvan týnist er hægt að núllstilla alla stafræna lykla í
valmyndaratriðinu<Lock & Alarm> í appinueBike Flow.
Aðgát! Þegar valin er stilling í appinu sem hefur neikvæðar
afleiðingar fyrir <eBike Lock> (t.d. þegar rafhjólinu eða
0 275 007 3RL | (25.02.2024) Bosch eBike Systems

Table of Contents

Related product manuals