EasyManua.ls Logo

Cube HYDE - Page 911

Cube HYDE
1195 pages
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
Íslenska – 4
Þriggja hnappa stjórnbúnaður
Stuðningur aukinn
Stuðningur minnkaður
Valhnappur/flett milli skjámynda (ýtt)
Valhnappur/valmynd opnuð (haldið inni >1s)
Athugaðu: Allar myndir af notendaviðmótinu og vísanir í
texta í notendaviðmótinu á næstu síðum miðast við
núverandi útgáfu hugbúnaðarins. Þegar hugbúnaðurinn er
uppfærður getur verið að breytingar verði á myndrænni
framsetningu, texta í notendaviðmótinu og/eða eiginleikum.
Athugaðu: Allt eftir birtuskilyrðum hverju sinni getur verið í
boði baklýsing sem kveikt er á með því að ýta á hnapp. Hægt
er að stilla hversu lengi er kveikt á lýsingunni.
Skjámyndir og stillingar í
hjólatölvunni
Upplýsingar um hraða og vegalengd
Hraðamælirinn sýnir hraðann sem hjólið er á.
Í upplýsingareitnum – sem sýnir bæði texta og gildi – er hægt
að velja um að sýna eftirfarandi upplýsingar:
<Distance>: Ekin vegalengd frá síðustu endurstillingu
<Riding time>: Aksturstími frá síðustu endurstillingu
<Time>: Klukkan
<Range>: Áætlað drægi á hleðslunni sem er eftir á
rafhlöðu hjólsins (miðað við að skilyrði á borð við
akstursstillingu, akstursleið o.s.frv. haldist óbreytt)
<Avg. Speed>: Meðalhraði frá síðustu endurstillingu
<Max. Speed>: Hámarkshraði frá síðustu endurstillingu
<Total distance>: Sýnir heildarvegalengdina sem hjóluð
hefur verið á rafhjólinu (ekki hægt að endurstilla)
Athugaðu: Þegar hjólað er á rafhjólinu sýnir hjólatölvan
sjálfkrafa ráðleggingar um gírskiptingu. Ráðleggingar um
gírskiptingu eru sýndar í forgrunni yfir texta (f) í
hjólatölvunni og hægt er að slökkva á þeim handvirkt í
grunnstillingunum.
Skipt yfir í upplýsingareitinn
Ýttu endurtekið á hnappinn eða þar til
upplýsingarnar sem þú vilt sjá birtast.
Ýttu endurtekið á valhnappinn þar til
upplýsingarnar sem þú vilt sjá birtast.
Sumum stillingum er ekki hægt að breyta í hjólatölvunni,
heldur eingöngu í appinu eBike Flow, t.d.:
<Wheel circumference>
<Reset range calculation>
<Auto trip reset>
Í appinu eBike Flow hefur þú auk þess yfirsýn yfir
notkunartíma og uppsettan búnað.
Grunnstillingar sýndar og þeim breytt
Athugaðu: Ekki er hægt að opna stillingavalmyndina á ferð.
Til að opna valmyndina fyrir grunnstillingar skal halda
valhnappinum
á stjórnbúnaðinum inni þar til <Settings>
birtist í textareitnum.
Skipt á milli grunnstillinga
Ýttu endurtekið á hnappinn eða þar til
viðkomandi grunnstilling birtist.
Ýttu endurtekið á valhnappinn þar til
viðkomandi grunnstilling birtist.
Athugaðu: Breytta stillingin er vistuð sjálfkrafa þegar farið er
úr grunnstillingunni.
Grunnstillingum breytt
Til að fletta niður skal ýta á valhnappinn þar
til viðkomandi gildi er sýnt.
Til að fletta niður skal halda valhnappinum
inni í >1s þar til viðkomandi gildi er sýnt.
Athugaðu: Þegar viðkomandi hnappi er haldið inni er skipt
sjálfkrafa yfir í næsta gildi í grunnstillingunum.
Eftirfarandi grunnstillingar eru í boði:
<Trip reset?>: Allar upplýsingar um vegalengdina sem
búið er að hjóla eru núllstilltar.
<Language>: Hér er hægt að velja úr eftirfarandi
tungumálum:
ensku, þýsku, frönsku, hollensku, ítölsku, spænsku,
portúgölsku, dönsku, sænsku, norsku, pólsku, tékknesku,
japönsku, hefðbundinni kínversku fyrir Taívan og kóresku.
<Units>: Hægt er að sýna hraða og vegalengd í
kílómetrum eða mílum.
<Time>: Hér er hægt að stilla klukkuna.
<Time format>: Klukkan getur verið með 12 tíma sniði
eða 24 tíma sniði.
<Shift recom.>: Hægt er að velja hvort birtar eru
ráðleggingar um gírskiptingu.
<Backlight.>: Hér er hægt að velja hversu lengi á að vera
kveikt á baklýsingu.
<Brightness>: Hægt er að breyta birtustiginu í
mismunandi þrepum.
0 275 007 3BI | (23.02.2024) Bosch eBike Systems

Table of Contents

Related product manuals