EasyManua.ls Logo

3Shape TRIOS 5 MOVE+ - Fjarlægðir Milli Kerfis Og Annars Búnaðar; Forkröfur; Hugsanlegt Vélrænt Tjón; Kerfisöryggi

3Shape TRIOS 5 MOVE+
251 pages
Print Icon
To Next Page IconTo Next Page
To Next Page IconTo Next Page
To Previous Page IconTo Previous Page
To Previous Page IconTo Previous Page
Loading...
124
ÍSLENSKT
1700-1990
GSM 1800;
CDMA 1900;
GSM 1900;
LTE tíðni 1,3,4, 25;
UMTS
28
2400-2570
Bluetooth,
WLAN,
802.11 b/g/n,
RFID 2450
LTE tíðni 7
28
5100-5800 WLAN 802.11 a/n 9
4.16 Fjarlægðir milli kerfis og annars búnaðar
TRIOSMOVE+ er ætlað til notkunar í rafsegulumhverfi þar sem eftirlit er með truflunum vegna
RF-sendinga. Viðskiptavinur eða notandi TRIOSMOVE+ getur hjálpað til við að koma í veg
fyrir rafsegultruflanir með því að halda lágmarksfjarlægð milli færanlegs eða hreyfanlegs RF-
fjarskiptabúnaðar (senda) og TRIOSMOVE+ eins og mælt er með hér að neðan, í samræmi við
hámarksafl samskiptabúnaðarins.
Hámarksúttaksstyrkur
sendis, W
Fjarlægð eftir tíðni
sendis, m
150 kHz
til80 MHz
d = 1,2
P
80 MHz
til 800 MHz.
d = 1,2
P
800 MHz
til2,5 GHz
d = 2,3
P
0,01 0,12 0,12 0,23
0,1 0,38 0,38 0,73
1 1,2 1,2 2,3
10 3,8 3,8 7,3
100 12 12 23
Fyrir senda sem eru metnir á hámarksafli sem ekki er talið upp hér að ofan má áætla ráðlagða
fjarlægð d í metrum (m) með því að nota jöfnuna sem gildir um tíðni sendisins, þar sem P er
hámarksúttaksstyrkur sendisins í vöttum (W) samkvæmt framleiðanda sendisins.
Athugasemd 1: Við 80 MHz og 800 MHz gildir fjarlægðin fyrir hærra tíðnisvið.
Athugasemd 2: Þessar leiðbeiningar eiga ekki við í öllum aðstæðum. Frásog og endurkast
frá mannvirkjum, hlutum og fólki hefur áhrif á rafsegulútbreiðslu.
Ráðlagðar notkunarfjarlægðir
Tenging Tegund Ráðlagðar notkunarfjarlægðir
MOVE+ - skanni Þráðlaust
Fjarlægð á milli TRIOSMOVE+ og skanna/aðgangspunkts
ætti að vera á milli 0,5 og 5 m til að ná sem bestum árangri.
Netkerfi
Snúið par
(skermað)
Fjarlægð á milli TRIOSMOVE+ og netkerfis ætti að
vera innan við 5 m til að ná sem bestum árangri.
5. Kerfisöryggi
5.1 Forkröfur
VARÚÐ
Lestu allar leiðbeiningar vandlega, þar á meðal allar viðvaranir og varúðartil-
kynningar. Þú verður að fara eftir viðvörunum í þessari handbók til að koma í veg
fyrir meiðsli á fólki og skemmdir á búnaði. Aðeins er hægt að tryggja rétta virkni
og öryggi ef farið er eftir öryggisráðstöfunum í þessum öryggisleiðbeiningum og
á TRIOSMOVE+.
Fyrirbyggjandi skoðun fyrir notkun kerfisins
VIÐVÖRUN
Athugaðu TRIOSMOVE+ með tilliti til vélrænna skemmda á:
Öllum umlykjum.
Öllum snúrum.
Aðeins er hægt að tryggja öryggi ef EKKI verður vart við
skemmdir á TRIOSMOVE+.
Breytingar á kerfinu
Viðvörun
Ekki breyta TRIOSMOVE+ án leyfis framleiðanda.
Aðeins samþykktur hugbúnaður
VARÚÐ
Settu aðeins upp samþykktan hugbúnað – til að koma í veg fyrir truflun
á afköstum TRIOSMOVE+.
Þjálfun
VIÐVÖRUN
Áður en þú reynir að nota TRIOS-kerfið með sjúklingum:
Þú verður að hafa lesið og skilið alla hluta þessarar handbókar sem lýsa
réttri notkun.
Þú verður að vera vel kunnug(ur) öruggri notkun TRIOSMOVE+ eins og
lýst er í þessum skjölum.
Ef EKKI er farið eftir leiðbeiningum um notkun TRIOSMOVE+ eins og lýst
er í þessari handbók og þeim fylgt getur fyrirhuguð virkni og öryggi þess
fyrir notanda og sjúkling verið skert.
Ef bilun er í búnaði
VARÚÐ
Ef bilun kemur upp í TRIOSMOVE+ á einhverjum tímapunkti eða ef þig grunar
á einhvern hátt að TRIOSMOVE+ virki ekki rétt:
Fjarlægðu TRIOS-skannatengið við sjúklinginn tafarlaust.
Taktu úr sambandi við rafmagn og gættu þess að ekki sé hægt að nota það
áður en það er athugað.
Hafðu samband við 3Shape þjónustudeildina þína.
Ekki reyna að opna neinar hlífar á TRIOSMOVE+.
Þráðlaus tenging
Þráðlaust TRIOSMOVE+ er ætlaður til notkunar innandyra, í rafsegulumhverfi heimilis eða
atvinnuhúsnæðis. Þráðlausu tengingunni er ætlað að miðla myndstraumsgögnum og stjórna
gögnum á milli TRIOS-skannans og TRIOSMOVE+. Samskipti milli TRIOS-skannans og
TRIOSMOVE+ fara í gegnum samskiptaþjónustu 3Shape.
VARÚÐ
Annar flytjanlegur og hreyfanlegur RF-samskiptabúnaður gæti truflað þráðlausa
TRIOSMOVE+, jafnvel þótt hinn búnaðurinn uppfylli kröfur CISPR um útgeislun.
VARÚÐ
Þráðlaust TRIOSMOVE+ gæti truflað annan flytjanlegan og hreyfanlegan
RF-samskiptabúnað.
MIKILVÆG TILKYNNING
Mælt er með því að hafa sjónlínu á milli þráðlausa TRIOS-skannans
og TRIOSMOVE+.
5.2 Hugsanlegt vélrænt tjón
Skemmdur búnaður
VIÐVÖRUN
Haldið báðum höndum á efri hluta TRIOSMOVE+ þegar það er fært á gólfi.
Ekki skal reyna að lyfta TRIOSMOVE+ án aðstoðar. Þegar kerfið er fært yfir
dyraþrep eða annað óslétt yfirborð skal fá aðstoð hjá öðrum til að tryggja
stöðugleika þess.
Þegar TRIOSMOVE+ er fært yfir gólf skulu öll hjól snerta gólfið og ganga
skal úr skugga um að þau séu ekki læst.
Alltaf skal setja skannann í þar til gerða höldu á TRIOSMOVE+ þegar hann
er ekki í notkun og þegar TRIOSMOVE+ er fært.
Haldið fótum fjarri undirstöðu og hjólum TRIOSMOVE+ þegar það er fært á gólfi.
Aldrei skal draga TRIOSMOVE+ yfir snúrur þess.
Ekki setja TRIOSMOVE+ á stað þar sem halli er meira en 10 gráður.
5.3 Rafmagnsöryggi
Tryggið jarðtengingu
VIÐVÖRUN
Til að forðast hættu á raflosti má aðeins tengja TRIOSMOVE+ við aflgjafa
með jarðtengingu. TRIOSMOVE+ eru búin þriggja pinna (US: fleinar) tengi
fyrir jarðtengingu. Ef ekki er hægt að stinga tenginu í samband skaltu hafa
samband við rafvirkja til að skipta um tengið eða innstungu til að tryggja
jarðtengda tengingu við rafmagn. Ekki reyna að fara á svig við eða hunsa
tilgang tengis fyrir jarðtengingu.
Ekki opna neinn hluta TRIOSMOVE+
VIÐVÖRUN
Ekki opna neinn hluta TRIOSMOVE+. Aðeins viðurkennt og hæft þjónustufólk
má opna nokkurn hluta TRIOSMOVE+.
Vökvi sem hellist niður
VIÐVÖRUN
Rafmagnsöryggi TRIOSMOVE+ gæti verið í hættu ef það er útsett fyrir vökva.
Ekki koma með vökva, eins og drykki, nálægt TRIOSMOVE+. Ekki hella vökva,
eins og hreinsiefni, á TRIOSMOVE+.
Álag á leiðslur
VARÚÐ
Ytri leiðslur mega aldrei verða fyrir togi.

Table of Contents

Related product manuals